fimmtudagur, apríl 12, 2007

Út í skóg að leita eldiviðar!

Sælt veri fólkið :)

Nú eru páskahelgin liðin og alvara lífsins tekin við :) Kannski það sé kominn tími á smá blogg :D Ýmislegt hefur átt sér stað síðan síðast var bloggað, Katlan fór á landsmót háskólanema í sporting (það er að drita úr haglabyssu á leirdúfur við ákveðnar aðstæður – Meiriháttar stuð) og haldið þið bara ekki að Kvennaliðið hafi unnið silfurverðlaun :D Við vorum skiljanlega ofsalega stoltar!

Um daginn (einn fallegan laugardag ;)) keyrðum við Rob líka upp í sveit að skoða okkur um, veðrið var yndislegt og guðirnir brosuðu við okkur!! Sveitin er afskaplega falleg hér í kring og mikið hægt að skoða, þjóðgarða, litla gamaldags breska bæji og svo framvegis.

Um páskahelgina fórum við svo í tjaldútilegu með vinafólki okkar Jacky og Paul! Gistum við á tjaldstæði sem kallast 'Peppermint Park' hehe ;) En engar áhyggjur, staðurinn sjálfur var ásættanlegur og í góða veðrinu notuðum við tækifærið og fara í göngutúra, keyra um nágrennið til að skoða okkur um og grilla góðan mat :)

Þar að auki skorti ekki viljann til að kveikja varðelda, svo liðið laumaðist í skjóli nætur fram og til baka um tjaldstæðið til að týna upp dauðar greinar og hvað sem fundum sem kalla mætti eldivið hehe :) Hélt bálið okkur hlýjum þar til farið var í háttinn þegar kuldinn nýsti að.. en klædd í ullarnærföt, tvær flíspeysur, með svefnpoka og sæng lifðum við af :)

En nóg um það í bili :)
Kærar kveðjur frá Englandi!
Katla :)

sunnudagur, febrúar 04, 2007

Með nýju ári koma ný tækifæri :)

Kærar kveðjur frá Bretlandi :)

Mín hefur haldið til Íslands of aftur til baka svo frá ýmsu er að segja :) Ég fór heim á klakann til að njóta jólahátíðarinnar með fjölskyldu og vinum. Var afskaplega gott að komast heim :) Og eins og vanalega þá var troðið í sig einum of mikið af ljúffengum kræsingum svo nú verður maður að reyna sig á hlaupabrettinu af og til :)

Það allra besta var að fá tækifæri til að njóta tíma með mínum nánustu enda sakna ég þeirra nú þegar aftur :)

En eins og ég sagði áður þá hafði mér gefist færi á að hitta elsku mömmu og pabba líka í Nóvember er þau komu í heimsókn og var einstaklega gott að sjá þau.

Heim á klakann fékk ég líka Rob í heimsókn í nokkra daga svo með honum fór ég á eilítið flakk til að sýna honum um, meðal staða sem heimsóttir voru eru Reykjanesið og bláa lónið, Þingvellir, Gullfoss og Geysir, kerið og fleira :) Mamma kom með okkur austur fyrir fjall og nutum við góðrar leiðsagnar er við ókum um fyrrum heimahaga hennar :) Einnig var farið í kjósina að heilsa upp á hestana sem virtust nokkuð sáttir við sinn hlut :)

Þegar til Bretlands var aftur komið tók svo við alvaran aftur, og hafist var til við rannsóknir aftur :)

Það þýðir þó ekki að maður geti ekkert slakað á um helgar svo af og til reynir maður að skella sér á smá flakk á laugardegi til að skoða sig um landsbyggðina hér í kring. Um daginn keyrðum við upp til Dartmoor sem er einstaklega fallegur þjóðgarður hér í nágrenni borgarinnar.

Það er sérlega skemmtilegt að keyra um Dartmoor þar sem Dartmoor pony-hestar ganga lausir og náttúran er töluvert frábrugðin umhverfi því sem maður á að venjast hér í Englandi. Við gengum í kringum þetta litla vatn sem sést á seinni myndinni og settumst niður með nesti og kaffibrúsa og nutum dagsins :)

Ég sendi ykkur öllum kærar kveðjur og vonandi sjáumst við fljótlega

xxx
Katla

mánudagur, desember 04, 2006

Jólin, karrý og kaffi með mjólk og sykri sem er ekki alveg eins á litinn og hinn sykurinn!!!

Kærar kveðjur vinir og vandamenn :)

Nú er desembermánuður genginn í garð og jólin nálgast óðum. Þegnar bresku krúnunnar undirbúa tíð ofáts og hóflausrar drykkju á sama hátt og flestallir vesturlandabúar, þar með talið klakabúarnir sjálfir :) Ekki þykir mér það þó tilefni til gagnrýni þar sem jólin koma nú einungis einu sinni á ári og það drepur mann varla að leyfa sér aðeins meira en vanalega gerist. Sjálfri finnst mér jólahátiðin einn skemmtilegasti tími ársins þar sem fjölskyldan kemur saman ýmist til að fagna hátið ljóssins eða einfaldlega til að halda upp á jólin sem fjölskylduhátíð.

Samfélag Bretlands er einstaklega fjölbreytt og litríkt, og nágrannar manns ýmist hvítir, svartir, gulir eða grænir! Vegna þessarar miklu fjölbreytni er mikil áhersla lögð á tillitssemi gagnvart fólki af öðrum kynþáttum, trúarbrögðum, kynhneigð og sannfæringu. Sem gestur í þessu samfélagi kemst maður ekki hjá því að leggja persónulegt mat á eðli hins almenna og viðurkennda hugarfars! Það virðist sem hin mikla áhersla á tilverurétt trúarbragða og siða fólks af framandi uppruna sé í auknum mæli að draga úr þjóðarstolti hins almenna breta. Gamlar evrópskar hefðir eru smám saman að hverfa heðan af Bretlandseyjum og breskur matur gefur eftir indverskum karrýréttum, kínverskum núðlum og ítölskum pítsum. Menningararfleifð annarra landa er hyllt á meðal unga fólksins, á meðan saga bretans sjálfs hverfur smám saman úr mynni landans. Ástandið er í raun orðið svo slæmt að ekki þykir það góður siður að vera stoltur yfir því að vera ‘hvítur’ evrópubúi eða breti. Margur bretinn skammast sín í raun fyrir það eitt að vera breskur og finnst þeim finnst þeir bera ábyrgð á syndum feðra sinna, hverjar sem þær eru.
Fólk af erlendum uppruna er hins vegar hyllt fyrir að vera stolt af arfleifð sinni. Orðin hvítur og svartur eru nánast bannorð þar sem ekki þykir til siðs að gera greinamun á fólki af mismunandi uppruna. Mörgum svörtum afgreiðslumanninum þykir það móðgun ef hvítur maður biður hann um ‘svart kaffi’. Betra þykir að nota frasann ‘kaffi án mjólkur’! Meðal ýmissa minnihluta hópa en einnig meðal stórs hlutfalls breta af evrópskum uppruna er það talið einstaklega slæmt og eitt helsta einkenni kynþáttahaturs þegar evrópubúar tjá stolt sitt af uppruna sinum. Stolt breta af afrískum, asískum, mið - eða suður amerískum uppruna þykir þó ekki athugavert.

Sjálfri þykir mér ekkert að því að fólk af öðrum kynþáttum sé stolt af uppruna sínum. En hvernig kemur það þá til að við sem erum ‘bara hvít’ eigum helst að skammast okkar fyrir það? Þessi smáræða hljómar ef til vill sem kínverska í eyrum íslendinga, enda erum við vel þekkt fyrir þjóðernisstolt okkar! En nú þegar íslenskt samfélag verður ‘blandaðra’ með hverju árinu sem líður, tel ég það mikilvægt að við klakabúarnir höfum í huga reynslu annara evrópulanda sem lengri reynslu hafa af fjölþjóðasamfelögum. Hvort sem fólk hefur eitthvað á móti innflytjendum eða telur þá hafa góð ahrif á íslenskt blóð og menningu þá verðum við að muna að öll höfum við eitthvað til að vera stolt af, hvaðan sem við komum. Því engum er hollt að eyða ævinni skömmustulegur yfir arfleifð sinni og blóði, enda er stoltið mikilvægt þjóðarvitund hverrar manneskju. Afhverju ættum við annars að hafa fyrir því að varðveita sögu okkar, þjóðarmynjar og tungu ef við erum ekki stolt yfir því hver við erum!

Mörgum bretanum finnst sem ástandið hér í bretlandi stefni í það að allir aðrir en þeir sem tilheyra meirihlutanum, það er breti af evrópskum uppruna, seu hylltir og verðlaunaðir (hvort sem það sé staðan í raun eður ei). Ef það er raunin má segja að í nútíma bresku þjóðfélagi sé einna erfiðast að vera hinn venjulegi, heilbrigði, hvíti karlmaður. Vert þykir mér að minnast á hugsun þá sem ekki má gleymast þegar búið er í lýðræðissamfélagi: ‘Give all power to the many and they will oppress the few, give all power to the few and they will oppress the many...’

En nóg um pólitískan áróður í bili :)

Kærara desemberkveðjur frá Bretlandi

Katla

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Mamma, Pabbi og sælgætið :)

Jæja jæja :) Þykir mér kominn tími á blogg!

Elsku mamma og pabbi komu í heimsókn til mín um daginn og var alveg yndislegt að sjá þau! Við skoðuðum Plymouth saman en fórum einnig inn í nágrannasýsluna Cornwall þar sem mömmu og pabba gafst færi á að smakka ‘Cornish Cider’ og hefðbundna ‘Cornish Pasty’ :) Var einstaklega gaman að fá þau í heimsókn, og voru þetta afskaplega skemmtilegir nokkrir dagar. Pabbi hafði orð á hvursu góðan bjór bretinn kann að brugga, og mamma fékk að njóta þess að sitja í kvöldstofu einnar elstu ginverksmiðju breta og sötra gin ;)

Það vard ekki til að skemma fyrir þegar þau afhentu mér fullan poka af íslensku sælgæti!!! Súkkulaði og lakkrís mmmm :D :D Takk kærlega fyrir það! Ég er náttúrulega nánast búin með það allt saman, enda hefur maður verið lakkríssveltur í langan tíma! Það er fyndið hvursu misjafn sælgætissmekkur er milli landa. Töluvert er til af ágætis nammi hér í bretlandi, sérstaklega súkkulaði, en sterki brjóstsykurinn sem íslendingum finnst svo góður finnst hvergi! Það er einnig landlægur skortur á góðum lakkrís, og margt gúmmíið hér er svo sætt að augun á manni opnast svoleiðis upp a gátt og er ómögulegt að loka þeim fyrr en tveimur sólarhringum seinna!! Svipuð áhrif og almennilegt kaffi á að hafa ;) En það er nú svona... misjafn er smekkur manna ;)

En nóg um það í bili!! :)

Kvedjur fra Englalandi

Xxx Katlan

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Poppkorn eða heimsyfirráð?

Jahérna hér... Lengi hef ég vitað að mörgum íslendingnum þykir ljúfur sá siður að gæða sér á poppkorni á myrkrum aftankvöldum. Flestir njóta þess fyrir framan imbakassann eða, eins og gerist á sumum heimilum, fyrir framan arineldinn. Aðrir hafa þann ganginn á að narta í góðgætið uppi í rúmi áður en lagst er til hvílu á fimmtudagskvöldum. Margur guminn veit sennilega helst upp á sig sökina í myrkum kvikmyndahúsum eða á þröngum illa upplýstum borgarstrætum þar sem varningurinn er auðfenginn!

Hérna í Bretlandi virðist poppið hins vegar ekki náð nærri eins miklum vinsældum eins og heima á klakanum! Margir kjósa kornið sætt fremur en saltað svo að varla nokkurs staðar finnst gamla góða 'Orville' örbylgju poppkornið sem kaninn hefur af góðmennsku sinni kynnt fyrir okkur! Undirrituð neyddist því til að leggja í langa og erfiða leit að fyrirheitna varningnum en fann að lokum hið sívinsæla og umtalaða 'Orville' popp í einum af stóru matvöruverslununum. Beið hún kvöldsins spennt til að mega njóta þess að leggja vöruna sér til munns. Þegar heim var komið var pakkinn opnaður og poppið gert tilbúið í slaginn. Undirritaðri til mikillar undrunar kom í ljós að leiðbeiningarnar voru ekki einungis á ensku, heldur einnig á þýsku (skil það vel, þjóðverjarnir eiga við svipuð popp-fíknarvandamál að stríða og við klakabúarnir), einhverju asísku tungumáli (asíubúar borða popp í morgunmat) og ÍSLENSKU!!! Á bakhliðinni voru meginleiðbeiningarnar aðeins á þýsku og íslensku. Fyrst hin ástkæra 'Orville'-keðja í ameríku hefur fyrir því haft að setja íslenskar leiðbeiningar á útflutningsvörur sínar, hljótum við Íslendingar að vera meðal þeirra helstu kúnna! Afhverju ættu þeir annars að hafa fyrir því að notast við tungumál sem aðeins um 330'000 manns á plánetu þessari eru færir um að skilja??

Jahérna hér!! Það hlýtur nú að vera okkur öllum fullljóst að hinir miklu Íslendinar eru í þann mund að taka yfir!! Ef við stöndum saman og höldum þessu striki næstu árin mun poppmarkaðurinn eins og hann leggur sig verða í okkar höndum!! Ég tel afar líklegt að ef við leggjum áherslu á að ná stjórn á víðari vettvangi þá mun Evrópa öll vera íslensku-talandi eftir örfáa áratugi, og tunga þessi mun sennilega vera lögleitt sem fyrsta tungumál Evrópu um miðja 21. öld! Ég hugsa að ég sé engan vegin á villigötum ef ég leyfi mér að spá því að eftir um 70 til 100 ár munu Íslendingar EIGA HEIMINN!!!!!! ÍSLAND MUN TAKA YFIR!!!! ÍSLAND BEST!!

!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

....hrmm hrmmm... afsakið!! Ég tapaði mér aðeins þarna ;)

Allavega ;)

Þangað til næst.. :)

Ég bið að heilsa ;)
Katlan


.
.
.
..
...
....
.....
......
....... WE'RE GONA TAKE OVER!!!!!!

fimmtudagur, október 26, 2006

Komin aftur!!!

Bónó, Laddi og allrir aðrir allraheilagir!! Ég trúi því nú varla að svona langt sé síðan ég bloggaði síðast hehe :) Einhvernvegin þá virtist það næstum bara vera löng vika... mjög löng vika :/

En allavega :) Þá er allt gott héðan að frétta! Mín er að undirbúa lokaprófið í masternum og er byrjuð á doktornum svo nóg er að gera :) Leirdúfuklúbburinn er nýkominn aftur til starfa eftir langt sumarfrí svo mín hefur aðeins farið að dúndra í loftið :) Það er samt meir en lítið greinilegt að ég hef ekki skotið af haglabyssu í nánast hálft ár!!! :O En það er samt mikið gaman og mikið fjör :) Í gær fórum við að skjóta í svoleiðis úrhellis rigningu og þar sem mín á engan pollagalla þá var ekki ein einasta spjör á kroppnum þurr eftir æfinguna! Það eina sem hélst þurrt var regnhlífin mín sem ég hafði skilið eftir í bílnum!! :D En það þýðir víst lítið að ætla að halda á regnhlíf á meðan skotið er af haglabyssu :)

Annars hef ég nú ekki tekið upp á miklu undanfarna mánuði annað en að baslast við mastersverkefnið mitt! Hún Hrönnsla systir kom í heimsókn í sumar og var alveg æðislegt að sjá hana :) ..."Endilega komdu hvenær sem er í heimsókn aftur, það var rosalega gott að sjá þig" :).. Megin tilgangur komu Hrannar var að sjálfsögðu að hafa ofan af fyrir mér í nokkra daga, eins og eðlilegt þykir, og verð ég að segja að árangurinn var aðdáunarverður ;) En vonandi var henni ágætlega skemmt á meðan hehe!!) :) Var spásserað um Plymouth borg, gamla bæjinn og einstaka verslun með fínasta árangri að mínu mati :)

Annars er mín næstum farin að detta í snemmbúinn jólafíling :s!! Bretinn hefur að sjálfsögðu nú þegar hafið sölu jólatrjáa í öllum hugsanlegum litum ragnbogans. Ef einhvern skildi langa í bleikt jólatré með grænum jólakúlum og fjólubláum slaufum þá er úr nógu að velja.. eða ef einhver hefur smekk fyrir appelsínugulu tré með hvítum og bláum smáhestum og jólasveinum :)... Afskaplega er manni mikill léttir að vita af því að allt þetta sé í boði! Að hugsa sér að maður hafi hingað til látið sér venjulegt grænt jólatreé duga ;) hehe

En allavega :) Best ég yfirkeyri ekki alveg blogginu eftir svona langt frí.. aldrei að vita nema aðsvif leynist að einhverjum ykkar ;)

Heyrumst og sjáumst!!!
x Katla

föstudagur, febrúar 17, 2006

Kitlið :D

Hún Hrönnsla systir klukkaði og kitlaði mig svo hér kemur þetta :D

Alveg ÓHEYRILEGA langt haha... þið megið alveg gefast upp fyrirfram!

4 störf sem ég hef unnið við um ævina:
- Bakarís og glassúrgella
- Ungmey hjá Íbúðum aldraðra
- Gamalmenni á leikskóla
- Pöddupotari á rannsóknastofu við Háskóla Íslands

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur og aftur: Mér finnst þetta alveg óheyrilega erfið spurning!! Fer algerlega eftir því hvernig skapi ég er í hehe :) Svo ég tek mér bara bersaleyfi og gef upp “rétt rúmlega” 4 myndir :D
- Sound of Music (Og gaula náttla með. Annað ekki hægt :D… “The hills are alive… aaaaaa….”…. Og æra nágrannana!!!!!)
- My fair lady (Best ég velji líka eitthvað sem felur ekki neitt gól í sér ;))
- Birdcage (algjör snilld :D)
- Börn náttúrunnar (Get ekki horft á hana endalaust.. en með góðu millibili þá virkar hún alltaf!!)
- Óheyrilega hrifin af Big Fish (mynd sem ég gersamlega elska en fer samt alltaf vælandi í háttinn eftir áhorfið!)
- Monty Python allar saman og Pink panther nr 1 finnst mér alveg óborganlegar :D
- Svo náttúrulega HARRY BEIBÍ… HARRY POTTER NÁTTLA J (Þó ég verði nú að segja svo oft sem áður að blessaður imbapappírinn jafnast ekkert á við pappírinn sjálfan ;))

4 staðir sem ég hef búið á:
- Sverige
- Arnartanginn að sjálfsögðu, aðalbælið í bænum :)
- Mynni árinnar Plym í Englalandinu ;)
- Ja hérna… er það þá ekki upptalið?
- Nei bjó í örstutta stund í Hrauntungunni í Kópavoginum, á meðan verið var að “fiffa” upp á elsku Arnartangann!

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar: (Horfi nú bara aldrei á sjónvarpið þessa dagana)
- Hmmmmm…
- Hmmmmmmmm….
- Er bara ekkert að fylgjast með núorðið!!
- Ef ég fer yfir þá þætti sem mér hefur líkað hingað til… ;)
- Star Trek, Star Gate, Lost, Coupling, Friends, Desperate Housewives… osfrv ;)

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum: …uppáhaldsstaðir?? Ja það eru svo margir æðislegir staðir sem hægt er að nefna. Ég nefni örfáa sem mér eru sérstaklega minnistæðir en tek fram að ég get hugsað mér mun fleiri staði :)
- Grímsnesið og Kjósin, Íslandi :D
- Skælingar, Ísland
- Þórsmörkin að sjálfsögðu, Íslandi :D
- Af erlendum stöðum er úr nokkrum yndislegum stöðum að velja. Helst standa sennilega upp úr: Kakadu í Ástralíu, Doi Inthanon í Tælandi, Prag í Tékklandi, og Luzern í Sviss :)

4 síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blogg):
- http://www.sciencedirect.com/
- vefpósturinn minn :)
- http://www.visir.is/
- http://wok.mimas.ac.uk/

4 matarkyns sem ég held upp á:
- Lamb og hverskyns villibráð :)
- Góður Höfðingi (hvítmygluostur) og aðrir ostar
- Gott rauðvín, Shiraz frá SA Ástralíu kannski???
- Góð mandarína og jarðaber með rjóma… og aðrir ávextir :D
- Hangikjöt...!!!!!
- ……..gleymdi ég einhverju???

4 bækur sem ég les oft: Ja… fyrst ég les aðallega orðabækur og fræðirit þessa dagana vil ég heldur segja hvaða fjórar bækur eru í uppáhaldi hjá mér :)
- 100 ára einsemd eftir G.G. Marquez
- The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger
- Englar Alheimsins eftir Einar Má
- Harry Potter náttla :)

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna: Lífið held ég að væri nú langt um síðra ef maður hugsaði sífellt um hvar maður vill heldur vera. Er ekki nær að vera ánægður þar sem maður er en hugsa engu að síður um hvert mann langar að fara og stefna þangað (svo maður komist eitthvað í lífinu) ;)
- Annars er ég farin að hlakka til að komast heim á klakann hehe :)
- Hefði þó ekkert á móti því að sitja úti í sólinni (ef hún læti nú sjá sig hehe) með góða bók og glas með ísköldu vatni!! Veit fátt betra :)
- Eða sitja í heitapottinum í Arnartanganum að kveldi og horfa upp á stjörnubjartan himin eða norðurljósin

Vá hvað ég erfið hehe… :D Agalega erfitt ýmist að ná upp í fjögur atriði eða takmarka mig við aðeins fjögur atriði hehe

4 bloggarar sem ég klukka:
- Auði fjallkonu :) (Er ekki kominn tími á þig skvís?? Hehe)
- Írisi skvís
- Og hvernig væri að klukka köbenfarana fjóra?? Klukk :)