Jólin, karrý og kaffi með mjólk og sykri sem er ekki alveg eins á litinn og hinn sykurinn!!!
Kærar kveðjur vinir og vandamenn :)
Nú er desembermánuður genginn í garð og jólin nálgast óðum. Þegnar bresku krúnunnar undirbúa tíð ofáts og hóflausrar drykkju á sama hátt og flestallir vesturlandabúar, þar með talið klakabúarnir sjálfir :) Ekki þykir mér það þó tilefni til gagnrýni þar sem jólin koma nú einungis einu sinni á ári og það drepur mann varla að leyfa sér aðeins meira en vanalega gerist. Sjálfri finnst mér jólahátiðin einn skemmtilegasti tími ársins þar sem fjölskyldan kemur saman ýmist til að fagna hátið ljóssins eða einfaldlega til að halda upp á jólin sem fjölskylduhátíð.
Samfélag Bretlands er einstaklega fjölbreytt og litríkt, og nágrannar manns ýmist hvítir, svartir, gulir eða grænir! Vegna þessarar miklu fjölbreytni er mikil áhersla lögð á tillitssemi gagnvart fólki af öðrum kynþáttum, trúarbrögðum, kynhneigð og sannfæringu. Sem gestur í þessu samfélagi kemst maður ekki hjá því að leggja persónulegt mat á eðli hins almenna og viðurkennda hugarfars! Það virðist sem hin mikla áhersla á tilverurétt trúarbragða og siða fólks af framandi uppruna sé í auknum mæli að draga úr þjóðarstolti hins almenna breta. Gamlar evrópskar hefðir eru smám saman að hverfa heðan af Bretlandseyjum og breskur matur gefur eftir indverskum karrýréttum, kínverskum núðlum og ítölskum pítsum. Menningararfleifð annarra landa er hyllt á meðal unga fólksins, á meðan saga bretans sjálfs hverfur smám saman úr mynni landans. Ástandið er í raun orðið svo slæmt að ekki þykir það góður siður að vera stoltur yfir því að vera ‘hvítur’ evrópubúi eða breti. Margur bretinn skammast sín í raun fyrir það eitt að vera breskur og finnst þeim finnst þeir bera ábyrgð á syndum feðra sinna, hverjar sem þær eru.
Fólk af erlendum uppruna er hins vegar hyllt fyrir að vera stolt af arfleifð sinni. Orðin hvítur og svartur eru nánast bannorð þar sem ekki þykir til siðs að gera greinamun á fólki af mismunandi uppruna. Mörgum svörtum afgreiðslumanninum þykir það móðgun ef hvítur maður biður hann um ‘svart kaffi’. Betra þykir að nota frasann ‘kaffi án mjólkur’! Meðal ýmissa minnihluta hópa en einnig meðal stórs hlutfalls breta af evrópskum uppruna er það talið einstaklega slæmt og eitt helsta einkenni kynþáttahaturs þegar evrópubúar tjá stolt sitt af uppruna sinum. Stolt breta af afrískum, asískum, mið - eða suður amerískum uppruna þykir þó ekki athugavert.
Sjálfri þykir mér ekkert að því að fólk af öðrum kynþáttum sé stolt af uppruna sínum. En hvernig kemur það þá til að við sem erum ‘bara hvít’ eigum helst að skammast okkar fyrir það? Þessi smáræða hljómar ef til vill sem kínverska í eyrum íslendinga, enda erum við vel þekkt fyrir þjóðernisstolt okkar! En nú þegar íslenskt samfélag verður ‘blandaðra’ með hverju árinu sem líður, tel ég það mikilvægt að við klakabúarnir höfum í huga reynslu annara evrópulanda sem lengri reynslu hafa af fjölþjóðasamfelögum. Hvort sem fólk hefur eitthvað á móti innflytjendum eða telur þá hafa góð ahrif á íslenskt blóð og menningu þá verðum við að muna að öll höfum við eitthvað til að vera stolt af, hvaðan sem við komum. Því engum er hollt að eyða ævinni skömmustulegur yfir arfleifð sinni og blóði, enda er stoltið mikilvægt þjóðarvitund hverrar manneskju. Afhverju ættum við annars að hafa fyrir því að varðveita sögu okkar, þjóðarmynjar og tungu ef við erum ekki stolt yfir því hver við erum!
Mörgum bretanum finnst sem ástandið hér í bretlandi stefni í það að allir aðrir en þeir sem tilheyra meirihlutanum, það er breti af evrópskum uppruna, seu hylltir og verðlaunaðir (hvort sem það sé staðan í raun eður ei). Ef það er raunin má segja að í nútíma bresku þjóðfélagi sé einna erfiðast að vera hinn venjulegi, heilbrigði, hvíti karlmaður. Vert þykir mér að minnast á hugsun þá sem ekki má gleymast þegar búið er í lýðræðissamfélagi: ‘Give all power to the many and they will oppress the few, give all power to the few and they will oppress the many...’
En nóg um pólitískan áróður í bili :)
Kærara desemberkveðjur frá Bretlandi
Katla

6 Comments:
Mikið til í þessu hjá þér sys og ef maður reynir að benda á þetta, þá er maður stimplaður rasisti. En vonandi sveiflast pendúllinn aðeins til baka svo örlítið meira jafnvægi næst. En því miður er erfitt að gera stöðuna 100% réttláta fyrir alla.
Ja thad er nu malid... thad er alltaf ymist of eda van :)
En vid islendingar aettum ad geta horft til annarra landa og laera af reynslu theirra, tho thad yrdi nu sennilega nyjung hehe :)
ohhh ég var búnað skrifa rumsu hér en ég nenni ómögulega að skrifa hana aftur!! allavega fín ræða og sammála með að við ættum að líta til annarra landa þótt það séu ekki nema bara norðurlöndin.
Naekvaemlega! Og hana nu!!! :D
Ja nordurlondin eru sennilega naest okkur ad morgu leiti.. svo vert er ad fylgjast med elsku fraendur okkar ;)
Ég verð nú að viðurkenna að mér finnst enginn missir af vondum hefðbundnum breskum mat og finnst ekkert skrítið ef hann er að hverfa fyrir mat af ætara taginu. Og jú...blogg er á leiðinni :).
Hahaha nei nei skil það ;) En það er nú ekki svo mikið maturinn sem ég hef áhyggjur af, fremur en það að fólk hefur takmarkaðan áhuga og stolt fyrir eigin sögu. Á meðan meðalíslendingurinn er alveg að drepast úr þjóðarstolti hehe :)
Jei blogg!! Ég hlakka til ;)
xx Katla
Skrifa ummæli
<< Home