fimmtudagur, apríl 12, 2007

Út í skóg að leita eldiviðar!

Sælt veri fólkið :)

Nú eru páskahelgin liðin og alvara lífsins tekin við :) Kannski það sé kominn tími á smá blogg :D Ýmislegt hefur átt sér stað síðan síðast var bloggað, Katlan fór á landsmót háskólanema í sporting (það er að drita úr haglabyssu á leirdúfur við ákveðnar aðstæður – Meiriháttar stuð) og haldið þið bara ekki að Kvennaliðið hafi unnið silfurverðlaun :D Við vorum skiljanlega ofsalega stoltar!

Um daginn (einn fallegan laugardag ;)) keyrðum við Rob líka upp í sveit að skoða okkur um, veðrið var yndislegt og guðirnir brosuðu við okkur!! Sveitin er afskaplega falleg hér í kring og mikið hægt að skoða, þjóðgarða, litla gamaldags breska bæji og svo framvegis.

Um páskahelgina fórum við svo í tjaldútilegu með vinafólki okkar Jacky og Paul! Gistum við á tjaldstæði sem kallast 'Peppermint Park' hehe ;) En engar áhyggjur, staðurinn sjálfur var ásættanlegur og í góða veðrinu notuðum við tækifærið og fara í göngutúra, keyra um nágrennið til að skoða okkur um og grilla góðan mat :)

Þar að auki skorti ekki viljann til að kveikja varðelda, svo liðið laumaðist í skjóli nætur fram og til baka um tjaldstæðið til að týna upp dauðar greinar og hvað sem fundum sem kalla mætti eldivið hehe :) Hélt bálið okkur hlýjum þar til farið var í háttinn þegar kuldinn nýsti að.. en klædd í ullarnærföt, tvær flíspeysur, með svefnpoka og sæng lifðum við af :)

En nóg um það í bili :)
Kærar kveðjur frá Englandi!
Katla :)

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta hljómar vel! Trúi því varla að veðrið sé orðið svo gott að hægt sé að tjalda.

11:34 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá.. hehe.. veðrið hérna á Svalbarða er ekki orðið alveg svona gott. Það er ennþá bara harða vetur og ekki vorvottur!

kv
Ragga

10:57 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Já hehe ;) Það er heldur betur farið að vora hér :) Það var full kalt á næturna en alveg yndislegt á daginn :) Ætti að vera enn betra í sumar (7, 9, 13 ;))

Já ég get rétt ímyndað mér að það sé enn frekar kalt þarna lengst í Norðri! Hvað eigið þið eftir að vera þarna lengi? Verðið þið þarna í sumar líka? Sumarnæturna þarna hljóta að vera alveg yndislegar :D

2:57 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vid verdum herna ut juni, eda thad er planid i augnablikinu, og førum tha til Tromsø. Nuna er ordid algerlega bjart allan solahringinn og fra 19.april verdur midnætursol lika :p Thannig ad nu rikir bjartsyni :D

Kv ur endalaust bjørtu nordrinu :D

4:08 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að sjá hvað er gaman hjá þér Katla mín:)

Til hamingju með silfurverðlaunin!

Knús, Svava :)

9:19 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja mín kæra... ertu ekki örugglega á lífi þarna í útlandinu???

Kv. Ragga

11:35 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home