þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Mamma, Pabbi og sælgætið :)

Jæja jæja :) Þykir mér kominn tími á blogg!

Elsku mamma og pabbi komu í heimsókn til mín um daginn og var alveg yndislegt að sjá þau! Við skoðuðum Plymouth saman en fórum einnig inn í nágrannasýsluna Cornwall þar sem mömmu og pabba gafst færi á að smakka ‘Cornish Cider’ og hefðbundna ‘Cornish Pasty’ :) Var einstaklega gaman að fá þau í heimsókn, og voru þetta afskaplega skemmtilegir nokkrir dagar. Pabbi hafði orð á hvursu góðan bjór bretinn kann að brugga, og mamma fékk að njóta þess að sitja í kvöldstofu einnar elstu ginverksmiðju breta og sötra gin ;)

Það vard ekki til að skemma fyrir þegar þau afhentu mér fullan poka af íslensku sælgæti!!! Súkkulaði og lakkrís mmmm :D :D Takk kærlega fyrir það! Ég er náttúrulega nánast búin með það allt saman, enda hefur maður verið lakkríssveltur í langan tíma! Það er fyndið hvursu misjafn sælgætissmekkur er milli landa. Töluvert er til af ágætis nammi hér í bretlandi, sérstaklega súkkulaði, en sterki brjóstsykurinn sem íslendingum finnst svo góður finnst hvergi! Það er einnig landlægur skortur á góðum lakkrís, og margt gúmmíið hér er svo sætt að augun á manni opnast svoleiðis upp a gátt og er ómögulegt að loka þeim fyrr en tveimur sólarhringum seinna!! Svipuð áhrif og almennilegt kaffi á að hafa ;) En það er nú svona... misjafn er smekkur manna ;)

En nóg um það í bili!! :)

Kvedjur fra Englalandi

Xxx Katlan

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já ég skil ekkert í þessu með sterka brjóstykurinn! hann fæst bara ekki nema á íslansi og þegar maður fer til útlanda þá verður maður að gjöra svo vel að taka með sér bland í poka, þeas ef maður er svona nammigrís eins og við :) miss u XXX

12:22 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Nakvaemlega :D Madur laetur ser ekki detta i hug ad vera nammilaus dogum saman!!! ;) hehe

Miss'ya 2 :D

4:15 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég þekki þetta Katla mín :D ég kynntist því þegar ég bjó úti í dk. Lakrísinn er yfirleitt bragðlaus þarna úti. Enda fékk ég sendann lakrís, bingókúlur og m.fl. þá frá pabba. Þú verður bara að kaupa nóg af nammi þegar þú kemur heim um jólin. Vonandi fæ ég að sjá þig eithvað þegar þú kemur. Hlakka til að sjá þig :)
Miss´ya

6:32 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Ja thad vaeri gott ad hittast adeins :) Enda eru nu bara nanast hundrad ar lidin sidan sidast!! Vonandi er allt gott ad fretta af ther :D

Hlakka til ad sja thig somuleidis :)

Knus og kossar
Katla :)

4:07 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home