Miss C. Urenstotis
Allo allo, frk. Urenstotis hér :D
Katla litla var þeirra skoðunar að réttast væri að vera heiðarlegur og löglegur og borga fyrir að fá að hafa sjónvarp... manni er að sjálfsögðu gert skilt að borga einhverjum ónefndum mikilmennum fyrir þau einstaklegu forréttindi að hafa aðgang að afar vafasamri og illa skiljanlegri sjónvarpsdagskrá og óheyrilegu magni af klósettpappírsauglýsingum hehehe :D.... Varla getur maður nú sagt nei við því ;)
En hvað um það...!! Katlan hringdi í símanúmerið sem skrifað var með stórum rauðum stöfum á varúðarbréfið sem kom í pósti og varaði hana við því að hver sá sem er svo djarfur að njóta þess að horfa á bjórauglýsingarnar án þess að borga eigi sko von á að fá enn stærra og orðljótara bréf í pósti, fullt af bannorðum... skrifuðum í rauðu!! Katlan gat ekki átt það yfir höfði sér svo hún dreif sig að borga.... best að haga sér ;)
Eftir langt 20 mínútna samtal við hina indælustu símsvarastúlku beið Katlan eftir að fá sjónvarpsleyfið í pósti....
Jú jú :) Nokkrum dögum seinna kemur bréf til Miss C Urenstotis :) Katlan litla Jörundsdóttir kannaðist að sjálfsögðu ekkert við þennan nýja húsfélaga og hugsaði sér að senda bréfið til baka... eins og kóngurinn sagði "Return to sender, address unknown, no such person, no such zone...." :D (Hefði verið ferlega kúl að skrifa það hehehe)... En hún gerði sér sem betur fer fyrir að elsku bretinn hafði tekið upp á því að endurnefna hana :)
Svo þar hafið þið það.... ég kynni hér með fröken Urenstotis (hljómar óheyrilega líkt einhverju sem ætti sennilega að fara beinustu leið klósettið hehe.... eeeeen ;) )
Æi blessaður bretinn... ætli maður verði nú ekki að fyrirgefa honum hihihih :D
Adios amigos!!!
xxx zeKat

16 Comments:
Hahahaha hljómar grískt :)
Hahahaha :D Já mér datt það einmitt í hug hihi :)
Hahaha! En ótrúlega fyndið :) Ekki kannski draumanafnið -en núna veistu hvað bretinn heyrir þegar þú segjir nafnið þitt hahahahaha!!!!
Hahaha! En ótrúlega fyndið :) Ekki kannski draumanafnið -en núna veistu hvað bretinn heyrir þegar þú segjir nafnið þitt hahahahaha!!!!
Já...hmm...vúps....ýtti tvisvar :P
Hamingjan sanna!!!!
Urens sjálfur
Vá...maður lítur í smástund í hina áttina og í millitíðinni tapar þú þér á lyklaborðinu ;). Velkomin aftur :). Og mér finnst þetta nafn alveg snilld...ekki stafaðir þú það fyrir indælu símsvarastúlkuna?
hæ hæ dúllan mín alltaf gaman að lesa bloggið þitt verðum í bandi...... þetta er soldið flott nafn hehe......
sorrý gleymdi að skrifa að þetta er Þórey :)
Hæhæ :)
Jú jú þetta er greinilega það sem bretinn heyrir ;) Ég var nefnilega ekki beðin um að stafa nafnið svo þetta er svosum ekki skrítið hehe :)
Já og herra Urens hehe ;) Forvitnilegt nafn :D
Þórey ;) Gaman að heyra í þér sömuleiðis :D
Kveðja
Katlan
hehehe.. þetta hljómar einsog þvag-eitthvað! já blessaðir bretarnir, ég býð ekki í hvernig hún hefði afbakað mitt nafn!!!
kv
Þorbjörg Inga
Hahaha:) flott nafn... ég var einu sinni að fara til Írlands og var í bréfaskriftum til að byrja með... þá fékk ég einmitt bréf stílað á Ins Hun Bjamadohir... ég semsagt skrifaði ekki nógu skýrt, smá tengiskrift sem varð að þessu nafni
Svona smá forvitni... hvað ertu annars kölluð úti? varla geta þeir sagt katla...
Hahaha :) Ins Hun... hehe :D Get alveg séð hvernig listileg tengiskrift gæti misskilist svona hehe :)
Annars þá er misjafnt hvað bretinn kallar mig. Sumir kalla mig Kötlu en fella út t-ið þannig að það hljómar einhvernvegin eins og Ka-la með einhverskonar uhh hljóði á milli hehehe :D
Margir kalla mig þó bara Kat :)
Mjáááá...!!!
Það er ein manneskja hér sem ber nafnið mitt nokkuð rétt fram og það er hálf-finnsk stelpa úr leirdúfuklúbbnum mínum.
Finninn brillerar náttla alveg ;) hehe
Adio
Kat
Cat Urenstotis:) hehe skánar ekki:D ....þessi íslensku nöfn, ekki það besta fyrir útlendinga að bera fram:)
Hehehe :)
Nei nákvæmlega :D
Skrifa ummæli
<< Home