laugardagur, janúar 28, 2006

Ísskápur, ísskápur, ísskápur.....

Húsbóndi nokkur kom heim úr vinnu sinni kvöld eitt og sá hvar ókunnugum bíl hafði verið lagt í innkeyrslu hans. Grunaði hann samstundis eiginkonu sína um græsku og hljóp í snatri upp í svefnherbergið þeirra. Fann hann þar spúsu sína þar sem hún var að ljúka við að búa um rúmið.
Rétt í þeirri andrá heyrði húsbóndinn einhvern setjast inn í ókunnuga bílinn og setja hann í gang. Í bræði greip hann því ísskápinn sem þau höfðu í svefnherberginu og fleygði honum út um gluggann þannig að hann lenti á bílnum. Fór húsbóndinn þó ekki nógu gætilega svo hann hrasaði og datt út um gluggann.

Nokkrum klukkustundum síðar rankaði hann við sér á spítala og sá hvar maður nokkur lá illa slasaður honum til hægri handar. Spurði hann manninn hvað í ósköpunum hafi komið fyrir og fékk eftirfarandi svar:

“Ja sko, ég var bara í sakleysi mínu í heimsókn hjá kunningja mínum sem var að halda upp á afmælið sitt. Ég neyddist til að leggja í stæði nágranna hans þar sem hvergi var annars staðar laust. Þegar ég hélt svo af stað heim á leið henti einhver vitleysingur ísskáp út um gluggann!”

Húsbóndinn varð nokkuð vandræðalegur og ákvað að snúa sér við. Sá hann þá hvar annar mun meira slasaður maður lá í rúminu honum til vinstri handar. Spurði húsbóndinn því mann þennan sömu spurningar. Svaraði maðurinn þá:

“Ja sko, ég var bara í sakleysi mínu inni í þessum ísskáp……”

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

híhíhí aumingja kallinn! :)

6:18 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Já þú segir nokkuð hehehe :D

6:56 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hihihi já stundum veit mar bara!!
kv dagga

(tek það fram að ég er með gerfineglur núna aldrei þessu vant og það er aðal orsök allra stafsetninga villna...)

11:51 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hehe :) Gervineglur eru náttla þekktar fyrir að vera lélegar í stafsetningu....

....tíhíhí :D

2:45 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home