föstudagur, desember 02, 2005

Loksins bloggað..!!

Jæja : )

Ætli það sé ekki kominn tími á smá “update” hehe. Komment um bloggleti mína eru farin að verða ansi hávær : )

Katlan hefur sko verið að bralla ýmislegt síðan síðast var bloggað : ) Síðustu helgi skrapp ég til Svíþjóðar að heimsækja stóru systir, hana Hrönn, og gaurana hennar tvo, Georg og Eirík : ) Það var rosalega gaman! Helgin var afslöppuð og róleg og Eiki litli vakti mikla lukku : ) Ég verð bara að segja að ég held það sé ekki til meira krútt en hann hehe : ) Svona sólskinsbros hef ég bara ekki séð áður!!

Í Svíjaveldi keypti Katlan líka ogguponsu jólaskraut tíhí :Þ (Mikið gaman mikið fjör)… Nokkrar jólakúlur sem nú skarta sínu fínasta á veggnum í herberginu mínu sem og jólatrénu í eldhúsinu. Við skreyttum nefnilega litla gervijólatréð okkar síðasta þriðjudag… hlóðum á það óheyrulega miklu magni af skrauti sem sumir (n.b. ekki ég : )) höfðu keypt í algöru kaupbrjálæði helgina áður!! Hahaha …. Þar að auki hangir ýmiskonar annað skraut upp um alla veggi og loft í eldhúsinu hehe : ) Obbossla flott : ) Við hlustuðum á jólalög á meðan við skreyttum og sungum með…. Vá hvað ég er komin í mikið jólaskap hehe : )

Á miðvikudaginn fór ég líka á fund hjá leirdúfufélaginu. Var reyndar búin að gleyma honum þar til vinkona mín minnti mig á að “MÆTA NÚNA!!!” þannig að ég hljóp í snatri yfir götuna (hehe ekki langt að fara ;p) og á fundinn. Þau vilja endilega senda okkur í keppni eftir áramót (á nú alveg eftir að sjá hvernig það fer hehe) en aðal málið held ég að sé líka að fara burt heila helgi og hafa það gott… Alls ekki slæm hugmynd : )

Annars hlakka ég alveg rosalega að sjá ykkur öll þegar ég kem heim : ) Sem er eftir aðeins rúmar tvær vikur!!! Ja hérna hvað tíminn líður!!

Knús og kossar,
Katla

17 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ahh mikið er nú gott að heyra í þér aftur ;) ohh ég get sko alveg trúað því að hann Eiríkur sé sætur, ég á líka einn svona lítinn frænda og hann er algjört æði!! (strákurinn hennar AUðar systur)
...en jamms hlakka til að fá þig aftur á klakann :)

7:30 f.h.  
Blogger Hrönnsla said...

Takk barasta kærlega fyrir komuna, Eiríkur er mikið búinn að vera að tala um þig, saknar þín líklega ;) Held þú eigir eftir að brillera á leirdúfumóti :)

8:28 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hahahaha :) Já ég er líka alltaf að tala um hann... "Litli frændi minn þetta, litli frændi minn hitt, vissirðu að hann litli frændi minn, já það er eins og hann litli frændi minn...." hehe :) Er ábbla orðin dáldið pirrandi ;) hahaha...!

Já Ragga ég trúi því að hann litli frændi þinn sé obbossla sætur líka hehe :) Hvað er hann aftur orðinn gamall?

4:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hann er 8 mánaða, fæddur 25. mars og hann heitir Eysteinn Auðar :)Hvað er Eiríkur gamall? er hann ekki yngri? ..já og segi eins og systir þín, ég efast ekki um að keppnisskapið bregðist þér í dúfunum, koma svo! heheh ;)
knús Ragga

5:27 f.h.  
Blogger Hrönnsla said...

Eiríkur er 5 mánaða stúfur, hægt að sjá myndir á www.hronn2.blogspot.com :) svo maður monti sig aðeins ;)

5:58 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hæ en hvað það er gott að heyra í þér!! mínum hlakkar svo til að fá þinn heim! hvað er að frétta af pilsinu??? og þú manst eftir vidjó kvöldinu okkar !!

ég kíkti inn á bloggið þitt Hrönn um daginn og jibbíkóla hvað eiríkur er sætur!! algjört bjútí :)

ok stay black

11:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ skvís.. gangi þér vel í skólatörninni núna, nú eru prófin hér að bresta á og leiðindartími framundan :( ógíslega glatað.. ennn við stefnum á sálarball þann 21.des.. væri gaman ef þú kæmist með okkur ;) hehe.. dúndur..

kv Þorbjörg í prófham..

2:55 e.h.  
Blogger Hrönnsla said...

Sætastur náttúrulega ;)

9:37 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel í keppninni!!!!!!!! -eitthvað svo ótrúlega fyndið við leirdúfuskotkeppni :D Ertu orðin doldið góð í þessu? -Ekki gleyma að syngja líka ;) þú gætir aðvitað sungið um leið... The Singing Claypiggeon Shooter hahaha...

9:23 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, Birta Rut hér, rambaði inná síðuna alveg óvart og skoðaði myndir af litla frænda þínum, honum Eiríki og ég var ofsalega hrifin af honum. Bið að heilsa þér og pabba, hlakka til að sjá ykkur um áramótin.

8:24 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

vííííííí 3 heilir dagar í að þú kemur!!! hvenær hefur svo prinsessan svo tíma til að hitta hina prinsessuna??
marr þarf að skipuleggja sig alltaf marr er svo bissí sko... *blikk* en allavega í svaka djammi á mið í næstu viku! 21 des remember!!

það er líka eins gott að marr fái slúður þegar þú kemur miðað við að ekkert er bloggað...!! *skjót*

ok mundu nú að pakka pilsinu og sé þig ASAP knúsí knús
dagga

4:54 e.h.  
Blogger Hrönnsla said...

Sko það þýðir ekkert að koma með eitthvað "Loksins bloggað" björgunarfærslu og síðan bara hætta aftur ;) VIÐ VILJUM BLOGG! VIÐ VILJUM BLOGG!

Hrönn og Eiríkur sæti

6:27 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já...ég er farin að hallast að því að Katla sé laumubogmaður...amk er þetta mjög bogmannísk hegðun að byrja að blogga af krafti og hafa svo ekkert úthald! ;)

Auður frænka

5:36 e.h.  
Blogger Hrönnsla said...

hahahah er talað af reynslu?

12:23 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig grunaði þig það? ;)

Auður frænka

5:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæhæ, ég vildi bara senda á þig Jólakveðju, vona að þú eigir gleðileg jól, takk fyrir árið sem er að líða, kveðja Lísa

12:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Bloggið dáið eða? :)

3:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home