Valtarinn
Á leið minni í skólann í gær gekk ég fram á risastóra randaflugu sem hafði endað lífdaga sína á gangstéttinni. Þetta hefði ekki gripið athygli mína nema fyrir þá staðreynd að einhver gönguníðingur hafði traðkað á henni. Hún var flöt eins og pönnsa! Þetta var bara eins og atriði úr hryllingsmyndinni “Beggi klukk á valtaranum”! Rosaleg sjón…
Hugsið ykkur að ef þið lægjuð einhversstaðar í dauðatygjunum og notið síðustu mómentin til að hugsa um ástvini ykkar og um hverju þið hefðuð áorkað í lífinu. Þið vonist til að fá tækifæri til að kveðja ykkar nánustu. Svo bara kemur einhver vitleysingur og valtar yfir ykkur eins og ekkert væri!!
Þetta er harður heimur!!
KaJ

10 Comments:
ruuæææææææææt..... ;/
dagga.
Já Dagga mín! Nú er kjörið tækifæri fyrir þig að fara að hugsa aðeins um býflugurnar!! Komin á þennan aldur ;)
what!! glætan ekkert bull!! eftir 10 ár!!
dagga
æ katla þú ert yndi ...ég gleymi því seint hvað við komum oft seint á sundæfingar vegna þess að þú þurftir að bjarnga ormunum af gangstéttinni þegar það var rigning!! eða þegar við komum of seint heim af æfingu vegna þess að þú varst að bjarga flugunum upp úr pottinum heheh ;) þú er æði !
kv. Ragga
Hahahahahahaha :D Jú jú :) Sumir eru skrítnari en aðrir hehehe :)
Að hugsa sér hvað ég á inni marga lífsbjörgina hjá fjöldanum öllum af flugum og ormum hehehe :Þ (sem og þónokkrum köngulóm)...!!
xoxo Katla
ohhhh já ég á meira að segja eina mynd af þér frá skíðaskálanum í skálafelli í 10. bekk þegar þú ert að bjarga flugu sem ég var að berjast við að drepa!! hahah krúttið mitt!
OMG.... sannanir og alles hahahahaha :Þ
Þessir gömlu, góðu ;)
já og mannstu svo í frakklandi?? það er held ég í eina skiptið sem ég hef séð þig drepa dýr heheh ...mannstu við komum svo seint, allt í myrkri og það var eitthvað að fljúga á veggnum og þú náðir sko bara í kúst!! takk fyrir, mun aldrei gleyma þessu heheh
kv. Ragga
Hahaha :) Já einmitt hehe :) Við vorum sko ekki hrifnar þegar við komum inn í íbúðina hehe... Í myrkrinu virtist sem allt dýralífið úr km radíus hefði tekið sér bólfestu þarna inni... allavega samkvæmt ímyndunaraflinu hehe :) Og þetta stóra, óskilgreinda dýr fyrir ofan rúmgaflinn var ekki vinsælt þetta kvöldið :Þ
Kveðja,
Katla
Skrifa ummæli
<< Home