miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Rhinotillexomania

Jahérna…

Það er hægt að finna upplýsingar um ótrúlegustu hluti ef maður bara nennir að leita! Ég get þó ekki sagt að ég hafi sérstaklega verið að leita eftir eftirfarandi upplýsingum hehe… rakst á þær fyrir tilviljun!!

Vissuð þið að fyrir nokkrum árum var framkvæmd rannsókn á iðju þeirri sem á fræðimáli kallast “rhinotillexomania”. Eða á mannamáli; Að bora í nefið!

Ef heimild mín fer með rétt mál þá má lesa eftirfarandi úr niðurstöðum rannsóknarinnar:

8.7% segjast aldrei hafa borað í nefið (Þ.e. þeir eru að ljúga, þeir hljóta a.m.k. að hafa gert það sem smákrakkar!)

91% segjast einhverntíma hafa borað í nefið og gera það stundum enn. Samt töldu aðeins 49.2% svarenda að það að bora í nefið væri algengt meðal fullorðinna.

9.2% segjast bora í nefið “meira en í meðallagi" .

25.6% bora í nefið daglega, 22.3% gera það 2 til 5 sinnum á dag og þrjár manneskjur viðurkenndu að gera það a.m.k. einu sinni á hverjum klukkutíma.

55.5% eyddu 1-5 mínútum, 23.5% eyddu 5-15 mínútum og 0.8% eyddu 15-30 mínútum á hverjum degi við að grafa eftir gulli. Aðeins einn sagðist eyða a.m.k. 2 klukkustundum á dag við þessa iðju (alvarlegt “keis” af rhinotillexomania).

18% sögðust fá blóðnasir á meðan á þessu stóð, 0.8% sögðust hafa rofið skilvegginn á milli nasanna við þessa iðju (Ááááa).

82.8% sögðust tilgang þess að bora í nefið vera til að hreinsa það, 66.4% sögðu hann vera til að losa um óþægindi eða kláða, 35.7% til að forðast að hor hangi út um nasirnar, 34.0% vegna hreinlætis og 17.2% boruðu í nefið af gömlum vana. 2.1% sögðust bora í nefið einfaldlega vegna skemmtanagildis iðju þessarar (gaman hjá þeim!).

65.1% sögðust nota vísifingur, 20.2% litlafingur en 16.4% þumalinn til að bora í nefið.

Flestir (90.3%) sögðust losa sig við “gullið” í tissjú eða vasaklút á meðan 28.6% sögðust nota gólfið en 7.6% sögðust klína því á húsgögn (p.s. ekki velkomnir í heimsókn til mín).

8% svarenda sögðust að lokum gæða sér á fundinum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar þá smakkast hann bara nokkuð vel (ekki það að ég viti neitt um það… til að hafa ALLT á hreinu!).

Fróðlegt??? Góð spurning hehe : ) Mér finnst það þó nokkuð merkilegt að einhverjum hafi dottið þessi rannsókn í hug!

Allavega… Svona rétt til að vera viss um að þið fenguð ykkar ráðlagða dagsskammt af gagnlegum upplýsingum hehe :)

Ola, Katlína

P.S. fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa sér frekar til um þessa rannsókn:

Jefferson, J.W. og T.D. Thompson, 1995. Rhinotillexomania: Psychiatric Disorder or Habit? The Journal of Clinical Psychiatry 56(2): 56-59.

13 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ojbara!

10:29 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hahaha :) Vægast sagt!!!

Ég geri semsagt fastlega ráð fyrir að þú komir ekki til með að lesa þér frekar til um viðfangsefnið? ;)

Kveðja frá mér

11:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nei, veistu, ég hef ekki mikinn áhuga. Mér varð hálf óglatt við að lesa þetta...ojojoj!!! -hver borar í nefið langtímunum saman sér til skemmtunar og borðar síðan horið!!!

2:31 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hahahahaha :) Já... að hugsa sér!
Maður spyr sig hvað í ósköpunum....????

:)

2:58 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mig allavega klæjaði í nefið þegar ég las þetta:)

4:02 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hehehe :) Ekki skrítið ;)

(rhinotillexomanian að segja til sín hahaha)

4:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hehe.. var þessi grein innan um ígulkerjalirfuliteratúrinn??

Í síðasta sýni sem ég fór í gegnum var alveg gomma af skrápdýralirfum og þar á meðal ígulkerjalirfur.. þetta eru mjög flott kvikindi og í rauninni góð hugmynd að jólaskrauti... sem og reyndar margt í dýraríkinu... radiolarar alveg eins og snjókorn, slöngustjarna á toppinn á jólatrénu, foraminiferur sem jólakúlur og krabbaflær með jólasveinahúfur ..ekkert smá flott :)

kv
ragga krabbafló

1:32 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hehehehe :) Já þetta er reyndar alveg rétt hjá þér. Einhver flottustu listaverkin sem finnast koma úr dýra- og plönturíkinu :) Jafnvel úr jarðfræðinni sömuleiðis :)

Þú ættir kannski að taka þig til við að hanna jólaskraut í þessum dúr og selja á líffræðiráðstefnum víðs vegar um heiminn hehe ;)

Ég mundi allavega kaupa það!!

Kveðja,
Katlan

2:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ekki ég.............. hehe góð hugmynd samt... gætir grætt...
dagga

3:58 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hahaha :)

Ég get nú alveg ímyndað mér hverskonar jólaskraut þú myndir kaupa... ;)

tíhíhíhí :Þ

xoxo Katlan

3:07 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hver? ég?
dagga

7:51 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Ja thu ;)
KaJ

3:42 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

"Ekki satt!"....
"Hver tha?"....

"Dagga stal kokunni ur krusinni i gaer"...

Muahahahaha :) Eg er svo obbossla fyndin ad eg er ad deyja :D

3:45 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home