Maestro!!!!
Mín er alveg að springa úr ánægju :)
Búin að velja sér mastersverkefni og allt :) Vííííííí.....!!! :) Ég fann eitt sem er rosarosa spennó og skellti mér á það! Og búið er að samþykkja mig :)
Úúúúúúúúúúúú.... ég bara kemst ekki yfir það hvað þetta er spennó :) Húhúhúhúhúúúú :)
Svo bönkuðu líka 2 karlar upp á hjá mér fyrir nokkrum mínútum og færðu mér stóran gólflampa, gólfmottu og nýjan stól :) Það er víst verið að betrumbæta herbergin hérna á stúdentagörðunum. Alls ekki slæmt :) Nú er mín með hvorki meira né minna en fjóra stóla í svefnherberginu! Hehe... mig skortir allavega ekki pláss til að skella sístækkandi rassinum mínum á!
Þetta verður ekki lengra í bili þar sem ég bara verð að fara að prufa nýja stólinn og stinga lampanum í samband hehe :)
xoxoxo Katla

2 Comments:
Bara innilega til hamingju aftur með verkefnið, mjög spennó. Hlökkum rosalega til að sjá þig ;)
kv Hrönn og Eiríkur og að sjálfsögðu biður Georg að heilsa líka
Takk skvís :) Ég hlakka obbosslega til að sjá ykkur sömuleiðis :)
Skrifa ummæli
<< Home