Ljósapera
Það fylgdi meira að segja ljósapera með lampanum!!!
Ég er svo aldeilis hlessa!
Getur lífið nokkuð orðið betra?
Hehehehe :)
Kveðja,
Katlan
Hér mun ég greina frá hverskyns ævintýrum sem ég kann að lenda í sem og lítið merkilegum viðburðum sem eiga sér stað meðan á dvöl minni í Englalandi stendur!
19 Comments:
Til hamingju með það:) hvað er svo þetta ægilega spennandi verkefni?
Þakka ykkur fyrir :)
Já á maður ekki einmitt að grípa hvert það tækifæri sem gefst til að vera ánægður og glaður? Það er miklu skemmtilegra en hinn möguleikinn!! Hehe :)
Já verkefnið... hmmm...
Svona til að gera langa sögu stutta þá ætla ég að skoða áhrif hormónatruflandi efna á vissa þætti í erfðafræði og þroskun ígulkerjalirfa. Það er ROSA spennandi ég lofa :) Heheh.. Meira spennandi en það eflaust hljómar í ykkar eyrum!
En málið er að við mennirnir losum mikið af svokölluðum hormónatruflandi efnum út í náttúruna sem rugla í hormónakerfi lífvera á ýmsan hátt. Má nefna dæmi að mengun af þeirra völdum getur leitt til þess að sum dýr taka að breyta um kyn!!
Ég kem hins vegar til með að leita eftir ákveðnum áhrifum á erfðafræði ígulkerjanna! Ú ég hlakka svo til :)
Ok þetta var kannski ekkert rosalega stutt saga :)...
P.S. bleikur er góður litur :)
þetta hljómar vel þ.e verkefnið þitt. spennandi.. enda þurfa MAESTRO verkefni að vera það, það er annað en mitt BS verkefni, svo óspennandi að ég get varla sagt frá því!
Gangi þér nú vel með þetta skvísulís.. og til hamingju með lampann!! og tala nú ekki um ljósaperuna, þvílíkur kaupauki..
kv Þorbjörg Ingalingaló
Þakka þér fyrir sæta :)
En ég trúi nú ekki að verkefnið þitt sé svo óspennandi! Eru ekki allar rannsóknir spennandi? Bara spurning um að sjá hvað það er sem gerir þær spennandi :)
Annars var ég að skoða bloggið þitt líka :) Það er gaman að heyra að þú getir að minnsta kosti skemmt þér yfir fólkinu á heilsugæslunni hehehe :)
Kveðja KJör
Til hamingju skvís!!! -hljómar doldið spennó :)
já hehe.. ég get alveg hlegið að þessu liði! er þetta alltaf svona í mosó??:) fólk svona illa upplýst eða hvað.. hahaha.. fuglaflensa fuglaflensa.. passaðu þig á henni þarna úti. ;) en við erum 2 saman að gera fræðilega úttekt í lokaverkefninu og það er bara eitthvað svo óspennandi.. en þetta verður kannski ok.. Rannsóknin kemur síðar.. ;)
kv Ingalingaló
Vann pabbi þinn einhvern tímann að einhverju um ígulker? eða er ég að rugla...
Haha já ætli við mosfellingar séum ekki dáldið spes :)
En pabbi og ígulker! Ég veit ekki til þess að hann hafi unnið sérstaklega með ígulker. En það má vel vera :) Ég skal spyrja hann :)
Kveðja,
Katla
held að hann hafi verið mest að vinna með snigla, kynskiptisnigla ;)
kv
úú..ye! þetta verkefni hljómar vel :) er séns að það stækki upp í phd??
kv
ragga krabbafló
Aldrei að vita :)
Kemur í ljós þegar líður á hehe :)
Hvað er annars að frétta af aðalmýsídu og kvarna gellunni? ;)
Kv. Katla
hehe.. ég er búin að kveðja mysidurnar í bili og búin að snúa mér að copepodunum :) það er ágætt að breyta til skal ég segja þér :þ
Karen hefur það bara gott við að telja hringi hehe..
annars er það helst að frétta að rækjustofninn er hruninn og þroskstofninn er á góðri leið með það líka .. hehe.. þetta er allt á leið til youknowwho
kv
ragga krabbafló
Nú nú eru það kópepodar núna :) Ú gaman gaman :) Já alltaf gaman að breyta aðeins til ;) Ertu þá farin frá Hafró?
Nú hvað ertu að segja... Rækjan bara illa sett og þorskurinn líka! Maður má ekki skella sér frá í smá stund og þá bara allt komið í bál og brand... Ja hérna hér! Ég verð bara að reyna að kippa þessu í liðinn þegar ég kem heim um jólin hahaha :)
Ég bið að heilsa frk kvörn hehe :)
Hvaða kópepoda ertu annars að skoða?
ég er nú bara ennþá á hafró.. þetta er mest hann kalli finns og aðrir kalanóídar frændur hans sem eru á flakki umhverfis landið.. ásamt reyndar gommu af oithonu frænkum :)
en það er nokkuð ljóst að þú verður að kippa þessu í liðinn þegar þú kemur aftur heim.. þetta nær ekki nokkurri átt :þ
kv
ragga krabbafló
Já endilega skilaðu kveðju til kalla og frændsystkynanna næst þegar þú rekst á þau... þ.e.a.s. ef þau eru enn spriklandi :)
Hehehe :)
Kveðja,
KaJ
KATLA!!! nú er ég BRJÁLUÐ!!!
var ég ekki búnað ræða það við þig að farað blogga!!! ertu búnað gleyma okkur vinum þínum frá íslandi???:(
ég er komin með leið á ljósaperu blogginu... heheh
saknaðarkveðjur frá döddu
Hahahah :) OK nóg komið með ljósaperuna :)
Já Dadda mín ég skal blogga réééééttt strax ;) Smá bissí í augnablikinu.... ( ;) )
....ég looooofa að það fer að koma hehe :)
xoxoxo.... auka x í sárabót frá mér!!!
Katla letibloggari
Skrifa ummæli
<< Home