Klukk
Jæja hérna koma klukk-upplýsingarnar :) Ég skrifaði þetta í morgun (eins og sést ;) ) en ég hafði ekki tíma til að setja þetta inn fyrr en núna!
Fyrir hvern þann sem nennir að lesa þetta :)
Núverandi tími: 10:18
Núverandi föt: Svartar buxur og bleikur bolur og allt of stórir ullarsokkar að sjálfsögðu ;) (Pláss fyrir tærnar)
Núverandi skap: Allt æðislegt hér á bænum ;) Nývöknuð!
Núverandi hár: Rauð/skollitað, stutt og allt út í loftið í augnablikinu (smá koddafar)
Núverandi pirringur: Hnetusmjörið er búið!!!!
Núverandi lykt: Light Blue frá Dolce & Gabbana eða Fragile frá Jean Paul Gaultier (Ekki báðar í einu þó)
Núverandi hlutur sem ég ætti að vera að gera: Kaupa hnetusmjör!
Núverandi skartgripir: Úr og hálsmen… ekkert bling bling á mér sko!
Núverandi áhyggjur: “Ætli það sé ekki örugglega til nóg hnetusmjör í búðinni???”
Núverandi löngun: HNETUSMJÖR (held það ætti að vera nokkuð augljóst núna hehehe)
Núverandi ósk: Að það sé í alvöru ekki 41 dagur til jóla heldur miklu minna…. Þetta hlýtur bara að vera einhver misskilningur!
Núverandi farði: Ég var nú bara að vakna þannig að í augnablikinu er ég berrössuð í framan :Þ
Núverandi eftirsjá: Að hafa ekki verið búin að kaupa hnetusmjör….. ok nóg með mig og hnetusmjörið :)
Núverandi vonbrigði: Þeir selja ekki Nóa & Síríus konfekt hér í Englandi
Núverandi skemmtun: Ætli það megi ekki kalla þetta spurningaflóð skemmtun ;)
Núverandi staður: Fyrir framan tölvuna auddað!! “Sillý” spurning!
Núverandi bók: Flateyjargátan
Núverandi bíómynd: Ég get nú ekki gert allt í einu, horft á bíómynd og skrifað þetta hehe ;) Kannski ég segi bara “Pretty Woman”, hún er næst á dagskrá :)
Núverandi íþrótt: Raddbandateigjur og glasalyftingar :)
Núverandi tónlist: Raddbandateigjuhljóð (eða óhljóð, ég er ekki alveg viss ;) )
Núverandi lag á heilanum: Bjössi á mjólkurbílnum
Núverandi blótsyrði: “Bugger”
Núverandi msn manneskjur: Enginn í augnablikinu… Ætli nokkur sé vaknaður?
Núverandi desktop mynd: Höfrungur á svamli
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Eftir að ég er búin að gera allt sem ég þarf að gera hugsa ég að ég borði einhvern góðan kvöldverð, skelli mér í sturtu, horfi á “Pretty Woman” á meðan ég narta í eitthvað gott og fara svo að sofa :)
Núverandi manneskja sem ég er að forðast: Enginn
Núverandi dót á veggnum: “Wallace and Gromit” plakat :Þ
Ég ætla að vera svo gróf að klukka Döggu, Þóreyju, Þorbjörgu og Hildi (þegar þær koma heim frá Kongens Köben ;) ). Mæðrunum verður þó fyrirgefið ef þær nenna þessu ekki :)..
Einnig klukka ég hana Hrönnslu mína en hún er löglega afsökuð sökum aðstæðna; ung móðir með fyrirferðamiklan, lifandi fylgihlut :) Þú ræður hvort þú nennir þessu esskan!
Einnig klukka ég hana Auði frænku ef hún er í stuði :) Móðurafsökunin verður að sjálfsögðu tekin til greina :Þ

10 Comments:
Ég vissi ekki að þú lifðir á hnetusmjöri haha!
EF hún er í stuði? Hvað meinaru? Er hún ekki alltaf í stuði? ;) En audda tekur maður áskoruninni... :)
Bestu kveðjur,
Auður frænka
Dagrun, ja hnetusmjor er algerlega malid hehehe :) Eg er ekki viss um gaedi thess ut fra heilbrigdissjonarmidum en thad virkar fyrir mig, ekki spurning :)
Hahahaha :) Ja Audur fyrirgefdu esskan hehe :) Audvitad ertu alltaf i studi... guggnar ad sjalfsogdu ekki undan sma askorun :) Eg hlakka til ad sja thinar klukkupplysingar :)
Kvedja Katla hin mikla :)
Ég er ekki fyrirferðarmikill Katla, kommon...hvernig geturðu talað svona um mig á opinberum vettvangi ?
Georg
Ha??? Hvað sagði ég?
"ung móðir með fyrirferðamiklan, lifandi fylgihlut:)" ;)
Hahaha :) Ok... takk Íris mín! Ég skil :)....
Sorry Goggi minn :) Best ég endurorði þetta: "Ung móðir með tvo misfyrirferðamikla og missvanga fylgihluti" :)
xoxo Katlaaaa....
tíhíhíhí..... :Þ
Þetta er ekkert smá ofurvirk síða...endalaus komment!
Hehehe :) Já ég verð bara að segja að ég er mjög "impressed" og ánægð með hvursu duglegt fólk er að kommenta... það gerir þetta allt miklu skemmtilegra ekki satt? :)
Þakkir til ykkar allra fyrir afskaplega mörg skemmtileg komment :)
Knús knús!!
Katlan
Skrifa ummæli
<< Home