miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Fiskaklám???

Í morgun hélt ég fyrsta nemendafyrirlestur minn þennan veturinn og gekk það bara nokkuð vel. Ég var nokkuð stressuð yfir að þurfa að halda hann á ensku, flaug í hug að halda hann kannski á íslensku en mig grunar að það hefði nú fallið í nokkuð grýttan farveg! En þetta gekk bara mjög vel fyrir utan einstaka hik þegar ég allt í einu gleymdi hvar ég væri stödd og fann hjá mér þörf fyrir að segja eitthvað á íslensku en áttaði mig svo á að ég væri ekki á lengur klakanum hehe :).... (Það kemur mjög oft fyrir... ótrúlegt hvað manni getur stundum fundist eðlilegt að allir geti skilið mann þegar maður talar sitt eigið móðurmál!!)

Ég hélt fyrirlestur um áhrif ákveðins mengandi efnis á lífeðlisfræði og kynhegðun gullfiska, mjög spennó :) Nema hvað að þegar ég fjallaði um mismunandi kynhegðun fiskanna, hvernig karldýrin ýta í kellurnar o.s.frv. fór einn áheyrandinn, einhver stelpa, að brosa óheyrilega mikið og tísta inn á milli. Gerði það að verkum að ég átti í mesta basli við að halda aftur að mér og hlæja ekki líka hehe :) (sama mátti segja um alla hina)

Það var ekki fyrr en eftir fyrirlesturinn að hún sagði mér að þegar ég fjallaði um mismunandi kynhegðun fiskanna, hvernig rannsakendurnir eitruðu fyrir þeim, og tóku svo kynhegðun þeirra upp á myndband til að fylgjast með þá hafi hún ekki getað annað en ímyndað sér að ég væri að tala um fiskaklám! Hahaha... þetta fólk... eiga að vera vísindamenn hehe :)
Ég sé samt alveg núna hvað hún átti við ;)

Allavega... eftir að vera búin að spekúlera í fiskaklámi í nokkra daga þá er er ég alveg tilbúin til að skella mér í að eltast við gervidýrin, fljúgandi leirdúfur :)

Hasta la vista ;)

ze´Kat

19 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

úff fyrirlestur á ensku:/ nógu erfitt að tala á íslensku... gangi þér bara vel í þessu öllu:) en þú ert hér með klukkuð:) ekki það skemmtilegasta í heimi...

8:32 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Æi ég var að vona að ég myndi sleppa.. Hehe :)

Ok... ég skal láta klukkast um helgina :) Lofa að setja inn klukkupplýsingar þá :)

Síja honey :)

11:47 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hvað eru klukku upplýsingar??? er það þetta e-ð sem mar á að segja um sig...??? eller hva..??

2:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

úps ég gleymdi að kvitta... Dagga... (og fyrir commentið að ofan!!)

2:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Katal mín! Hvað ertu eiginlega að læra þarna úti!! ertu að sökkvað þér í kynhegðun fiska.. en vá.. dugleg ertu að halda fyrirlestur á ensku. Ég þyrfti nú að fá mér nokkur rauðvínsglös fyrir svona athöfn.

je.. so snakker vi bare dansk nu.

venlige hilsen

thobjorg

3:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Katal.. hehe úbbs.. þetta á að sjálfsögðu að vera KATLA.. ekki nema þú viljir láta kalla þig KATAL.. það er ekki svo slæmt!;)

3:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Katalonia Fiskeklam.

4:36 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hehehe :) Selvfølgelig snakker vi bare dansk. God rejse på morgen skatter :) Jeg håber at I har en god weekend og drækker massor og massor av rødvin in Kongens København ;)

So ser vi på Kataloniansk fiskeklam når I kommer hjem hehehe ;)

xoxoxo Katal

4:51 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Og já essku Dadda mín :) Þetta klukk er svona keðja þar sem maður á að svara nokkrum spurningum um sjálfan sig og halda svo áfram að klukka aðra.... bíddu bara ég klára mitt um helgina og fer svo að klukka ;) hehehe....

xoxox KaJ

4:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

4 c bh b h79 bghu nn ctr bnhbvn

kv eiki sæti

3:36 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hehehe :) Hæ Eiki krúsína rúsína :)

Já er það? En hvað það er merkilegt! Þú hefur margt mikilvægt að segja sé ég :) Takk fyrir kommentið ;)

Ég hlakka til að sjá þig eftir 2 vikur

Þúsund og einn koss :)

Katla frænka

3:57 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Og ég bið að heilsa mömmu og pabba :)

4:01 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Til Auðar frænku: Ég ákvað bara að kommenta hérna á mína síðu vegna skorts á kommentaðstöðu á þinni :) Vonandi svarar þetta spurningu þinni ;) hehe

xoxo

Kær kveðja frá útlandinu :)
Katla frænka

5:00 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Og já ég er svoooo sammála um að þetta sé algerlega spurning um viðhorf :) Þú átt eftir að þrífast vel, eins bjartsýn og þú ert :)

xoxoxo Katlan

5:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey Katla! Takk fyrir kommentið :)....þá veit ég það :). Annars er svosem ekki beint skortur á kommentakerfi hjá mér....ég á barasta eftir að læra nógu mikið í forritun til að draga það undan hulinshjálmnum.... :)
Bestu kveðjur,
Auður frænka

6:11 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Skil skil ;) Við bara bíðum spennt eftir að þú náir þér í gráðu í tölvunarfræði svo við getum farið að kommenta ;)

Hehehe....

Kær kveðja,
Katla

6:28 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Úfff, segðu..... ;)
Bestu kveðjur,
Auður frænka

7:06 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Dont drink water, fish f*** in it !

Georg

10:15 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hahahaha ;) Immitt... drekkum bara øl!!! :)

12:02 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home