þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Bolla bolla bolla....

Síðasta fimmtudag skrapp mín til Bristol í sérstaka móttöku sem haldin var til að bjóða erlenda nemendur hér í suðvestrinu velkomna til Englands. Sátum við í rútu í 3 tíma á leið þangað, stoppuðum í 1 og hálfan tíma, hlustuðum á ræður, átum og mingluðum. Að lokum keyrðum við svo heim í 2,5 tíma.

Hehehe... Ferðalag í rúman 5 og hálfan tíma til að stoppa í 1,5 tíma virðist dáldið mikið en þetta var bara hið fínasta ferðalag! Þetta reyndist vera hið besta tækifæri til að sitja og kjafta tímunum saman án þess að fá samviskubit yfir að eiga að vera að gera eitthvað mikilvægara og merkilegra.

Að sjálfsögðu voru líka ýmsar kræsingar bornar á borð fyrir okkur ásamt víni til að kyngja þeim niður með. Ekki slæmt. Sú staðreynd að ekkert hnetusmjör var á borðstólum gleymdist fljótlega þegar ég sá að í boði voru litlar vatnsdeigsbollur með súkkulaði og rjóma. Ég hélt næstum að það væri kominn bolludagur og að ég ætti að ganga um með bolluvönd og slá fólk á bossann. Sem betur fer (held ég) hélt ég aftur að mér og tók ekki til við að slá á bossann á pólitíkusunum og hinum nemendunum með veskinu mínu!

Þegar hugsað er út í það þá er ekki svo langt til bolludagsins. Þá er eins gott að hverjir þeir pólitíkusar og gangandi vegfarendur sem verða á vegi mínum vari sig......

moahahahahaha :)

(Ég sé sjálfa mig náttla alveg fyrir mér sem eina íslendinginn i Plymouth, hlaupandi um með bolluvond að slá fólk á bossann eins og brjáluð væri hehehe)

Till the next time luv´s and honeybuns

7 Comments:

Blogger Katla Jör said...

Fyrir ykkur hin sem vitið ekkert hvað ég er að fara þá ætti eftirfarandi komment að fara á bloggið hennar Auðar hehe:

Jújú Auður mín þú ert hinn fínasti bogamaður :)

Það er líka alltaf gaman að finna aðra Monty Python aðdáendur hehe :) Life of Brian er náttla algjör snilld! Alveg sammála því :) Ég á allar MP myndirnar heima á klakanum og þér er velkomið að fá þær í láni ef þú vilt :)

Knús og bananar

Katla

5:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir kommentið, Katla mín :)
Í alvöru? Áttu þær allar? Af hverju hefur þú ekki sagt mér þetta fyrr? ;) Jahá, ég vildi svo gjarnan fá þær lánaðar (þ.e.a.s. þegar ég er komin með vídeó sem býr svo vel að hafa bæði hljóð og mynd. Núverandi vídeó hefur hvorugt :)....eða eru þær kannski á DVD? Það vantar bara hljóðið á DVD spilaranum... :). Vá, þegar ég er að skrifa þetta sé ég að ég verð að fara að gera eitthvað í þessum tækjum...:)).
Bestu kveðjur,
Auður frænka

6:49 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hahahaha :) Já það lítur út fyrir að kominn sé tími á annað hvort viðhald eða endurnýjun á bænum :)

Þetta eru DVD diskar. Þannig að þegar hljóðið er komið í lag geturðu talað við hana mömmslu mína um að fá þær í láni... ekki málið :)

Ennþá betri kveðjur :)
Katla frænka

7:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já katla mín við getum föndrað einn bolluvönd eða svo þegar þú kemur svo þetta verði nú almennilegt í vor!!! ;)

kv daggilíus

5:33 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hehehe flott er :)

Mér líst vel á það :)... Roooosastóran!!!

Kveðja,
Katlan

4:40 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Viðhald? Hvar er það??????!!!! Mig vantar einmitt svoleis....Nei, nú er ég að fíflast. :)
Bestu þakkir fyrir boðið á DVDunum sem ég mun alveg örugglega nýta mér...skil barasta ekki hvernig ég funkera árum saman án þess að sjá Monty Python ;)

Bestu kveðjur
Auður frænka

6:36 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hahahahaha ;) Þá er bara að fara út að leita.. það er ábbla hægt að fá fullt af viðhaldstilboðum ef leitað er á réttum stöðum hehehe :) ....(Ég verð náttla að fá að fíflast á móti ;) )

Og já mér finnst merkilegt að þú sért enn á meðal oss eftir áralangt MP svelti..... jahérna!!! Það sem sumir þurfa að ganga í gegnum!! ;)

Kveðja,
Katla frænka

11:03 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home