sunnudagur, október 16, 2005

Ze Big D

Ég get svo svarið það... ég hef enn ekkert svar fengið frá Drollu!

Einhvernvegin læðist samt að mér sá grunur að kannski sé ég ekki með rétt e-mail. Það er ábyggilega bara vitleysa í mér en ég ákvað samt að spyrja ykkur! Hvað haldið þið?

dancing_queen@royalty.net

x KaJ

2 Comments:

Blogger Hrönnsla said...

Sko ef þetta er ekki netfangið hjá henni þá bara veit ég ekki hvað það ætti að vera. Ég held bara að hún skilji ekki íslensku, skrifarðu ekki annars á íslensku til hennar. Þú ættir bara að hringja í hana Dorrit og kvarta yfir þessu.

8:17 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Já auðvitað!!! Það skýrir málið! Já ég þekki sko hennar týpu.. Hún er ein af þeim sem sat úti á túni að reykja eitthvað "af vafasömum uppruna" þegar hún átti að sitja í íslenskutímum. Já já það eru rotin epli alls staðar!

Ég gekk að sjálfsögðu út frá því að eins merkileg manneskja og Bretadrottning myndi tala íslensku!! Best ég reyni aftur. Kannski enskan sé málið! Og ef það virkar ekki þá hringi ég í Dorrit vinkonu :)... Eða enn betra!" Ég hringi í hana engu að síður til að kvarta yfir agaleysi í íslenskukennslu konungsfjölskyldunnar! Og hana nú!

Takk fyrir góð ráð!

4:41 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home