The Shining
Jæja....
Rob íbúðarfélaga mínum fannst það snilldarráð að við stelpurnar skyldum sitja með honum og horfa á hryllingsmyndir þar sem hrekkjavakan er á morgun.... Á MORGUN tek ég fram, ekki í dag (þó svo að tæknilega sé hrekkjavakan í dag þar sem ég sit hér og skrifa soldið seint.... en það er náttla aukaatriði :) )....
Hann plataði okkur til að horfa á tvær hryllingsmyndir og sú seinni var "Shining" sem ég hafði aldrei séð (Kubrick og Spielberg nota bene!!!!)! Hvaða vitringi lét sér DETTA Í HUG AÐ GERA SVONA MYND..... kræst....!!! (Ég veit náttla svarið... en halló!!) ....
Ég er nú þegar búin að kíkja tvisvar sinnum undir rúm en fann ekkert. Ég er samt viss um að það er eitthvað þarna!!! Og ég á aldrei eftir að sjá ganginn hérna fyrir utan herbergið mitt í sama ljósi!!!! Ég mun héðan í frá búast við að sjá tvær litlar stelpur þar... (fyrir þá sem vita hvað ég er að tala um... fyrir ykkur hin: Ekkert vera að stressa ykkur, horfið bara á Madagaskar í staðin hehe :).. Ég vildi óska að ég hefði gert það!!) ..
Æææææ......
Hmmmm.... hmmmmm.....
Hlusta bara á Bryan Adams, kíki undir rúmið, inn í skápinn og allt það áður en ég fer að sofa!!! .....og fæ mér súkkulaðiís :) Það lagar allt!!!
Ég er með allt of lítið hjarta fyrir þetta!!!
xoxox...
Kkkkkkkkatla

5 Comments:
Ohh það er svo gaman hjá þér! Njóttu þess að vera þarna, ung og frjáls. Takk fyrir ÖLL commentin á síðunni minni í nótt - þú ert nú alveg ótrúleg, algjör snillingur. Skemmtu þér vel á hrekkjavökunni og bið að heilsa stúlkunum litlu sem dvelja undir rúminu þínu, þó að þú sjáir þær ekki með berum augum..... Úú ú ú... (ugluhljóð)
Æji, greyjið! Hvað ertu að láta plata þig útí svona vitleysu?!
Hahaha :) "Any time honeybonney"... ég skal leyfa þér að njóta snilli minnar sem oftast hehehe ;) Þér er náttla velkomið að gera slíkt hið sama ;)
Og Dagrún... já ég veit ekki hvað ég var að hugsa að láta hafa mig út í þetta! Mér líkar ekkert betur við hryllingsmyndir eftir því sem ég horfi á fleiri!! Sama hvað maður reynir hehe :) Það eina sem þær færa mér þessar elskur er það að ég slæ í sífellu tímametið sem það tekur mig að hlaupa frá herberginu mínu, inn í eldhús og til baka um miðja nótt hehehe :)
Ú úúú úúú.... smá ugluhljóð á móti :)
Þetta er eitthvað með hryllingsmyndir, ég er líka með þetta litla hjarta (ótrúlegt að það sé bara nógu stórt til að halda mér lifandi) en í birtunni í vídeóleigunni þá virðast allar hryllingsmyndir alltaf svo sakleysislegar og ég hugrekkið uppmálað, síðan drullu sér maður eftir því að hafa horft á þetta, en maður virðist ekki læra af mistökunum. Maður er kannski bara svona vitlaus :D Nú hef ég alla vega Eika til að hughreysta mig ;) svona alla vega þegar Georg er ekki til taks.
Nei einmitt hehe... maður lærir aldrei af mistökunum!! Ætlar alltaf að reyna bara einu sinni enn!! (Bara einu sinni!!) :) En gott þú getir reytt þig á hann Eika sæta :) Ég hlakka rosa til að kíkja á knúsboltann :)
Hahaha Dagga mín.. :) Nei nei vinsamlegast ekkert bjóðast til að slá mig utanundir, mér líður alveg ágætlega : ) Vantar þig einhvern til að fá útrás á? Það er ábbla hægt að finna fullt af sjálfboðaliðum hehehe
Hvað með Dóru....?
;)
Skrifa ummæli
<< Home