fimmtudagur, október 27, 2005

Ómandi kjölturakki

Jæja nú skulda ég ykkur sennilega uppfærslu þar sem liðin er næstum heil vika síðan bloggað var síðast!

Undanfarna daga hefur dvalið hjá mér sérkennilegur húsgestur sem birtist óvænt í dyrunum mínum síðastliðinn laugardag og sagði: "Hæ ég er komin í heimsókn! Ég er líka svöng. Mat takk!!!!". Var gestinum fljótlega færður matur: Doritos snakk og súkkulaðikökur og var síðan tekið til við að dekra viðkomandi! Þetta var hún Dagga heimshornaflakkari að kíkja í heimsókn til mín á leið sinni heim á klakann frá Barcelona.

Nei nú er ég að skreyta frásögnina eilítið (sem ég náttla geri aldrei!!!!) :) Döggu uberbeibi var að sjálfsögðu boðið að kíkja á staðinn (eða dregin hingað öllu heldur hehe) og var sérlega gaman að fá hana í heimsókn :) Var kíkt í bæinn og litið á ýmsa sögufræga staði (sem og síður merkilega staði), sofið, etið og súpt af ýmiskonar forvitnilegum veigum meðan á dvöl hennar stóð ;) Vakti hún líka mikla lukku hér hjá íbúum hússins með ýmsum sniðugum kommentum og látbragðsleikjum! Undir lok heimsóknarinnar var hún líka svo indæl að skilja eftir úrval eðaltónlistar í "kjölturakkanum" mínum (tölvunni), eigandanum til mikillar lukku! En hingað til hef ég orðið að láta mér nægja eigið garnagaul og söng grannanna í sturtu sem músíkalska uppliftingu :) Ég læt hér fylgja með nokkrar myndir frá heimsókninni.

Dagga mín, það var rosalega gaman fá þig í heimsókn :)

Kveðja,
Klakagellan

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

tu ert snar-gedveik katla min mohohohoh :) ja mamma var ad segja ad tad vaeri nu mikid a sig leggjandi og eg sagdi bara ja! og tetta er allt saman tess virdi! endurnyjudum astarblossann og svona.... tad var lika obboslega gaman ad hafa virkilega farid og hitt tig - og gestristnin a einum bae!! knus!!!! eg bid ad heilsa ofur rokkaranum og hinum litla og wonderbra heheheh tarf ad farad drifa mig ad eta svo eg missi ekki af rutunni uppa flugvoll... knus i botn fra doggu gemling!! :)

ps katla vorum vid ekki ad raeda ljotar myndir a netinu i gaer!!!??? djjjoooooookkkkk eg er alltaf saet ;) heheh

7:34 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

jæja kominn tími til að við snúum okkar að þinni gestabók.. en vá það hefur verið gaman að fá gest til sín þar sem þú ert nú fjarri vinum og vandamönnum.. en þú ert nú sjálfsagt búin að kynnast einhverjum bretum!
En talandi um hana Döggu, það er kona að vinna á heislugæslunni í mosó (þar sem ég er í verknámi) og hún er alveg einsog Dagga.. þetta er bara mamma hennar eða eitthvað.. mér finnst hún bara vera aðeins eldri útgáfa af Döggu!! þetta er bara rooosalegt!

en hafðu það gott skvísulís og takk fyrir góð súkkulaðiráð!;)

kv
Þorbjörg hin sljóa

8:15 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hahahahaha :)

Já Dagga þetta var æðislegt ;) Alveg eins og í gamla daga!! Og Dagga mín þú ert alltaf sæt ;) Knús knús :)

Og Þorbjörg :) Hahahaha.... nú fer Dagga sennilega í vettfangsferð upp á heilsugæslustöð í fyrramálið til að líta á málið hehehe ;) Kanna hver tvífarinn er ;) hehe :)
Það var annars gaman að heyra í þér :) Og hafðu það gott sömuleiðis :)

Kveðja,
Katla

8:44 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Já og þau báðu öll að heilsa þér sömuleiðis Dagga mín :)... þeim fannst meira að segja bara hálftómlegt eftir að þú varst farin hehe :)

8:44 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

oooohhhhhhh en sætt!! já ég verð nú barað segja þér að ég bara sakna þeirra líka... næst þegar ég fer e-ð þá flyt ég bara til þín heheh, neeeeeh sejji sona...

og Þorbjörg... hérna heitir konan nokkuð Gríma??? hún er læknir uppí mosó og allir halda að ég sé dóttir hennar, don´t know why... :)

6:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sælar, ha! er dagga komin á klakann? Yes! þar er sko kominn almennilegur djamm félagi aftur heim ;) .... og katla ég verð svo að koma og heimsækja þig, hef aldrei komið til bretlands!
kv. Ragga

3:44 f.h.  
Blogger Katla Jör said...

Já Dagga mín komdu bara að búa hjá mér hehe :) Dýnan er ennþá hérna og ég get svo minnkað draslið í ísskápnum þannig að það komist bæði diet og venjulegt kók inn í hann hahahaha :) (Passa upp á mikilvægu atriðin hehe)

Já og Ragga ;) Endilega komdu í heimsókn ef þú hefur möguleika á því :) Það yrði ógessslega gaman :) Plymouth er ágætisstaður til að kynnast Bretlandi í fyrsta sinn. Það er reyndar farið að kólna hérna núna en á sumrin er þetta með heitustu stöðunum á öllum Bretlandseyjum :) Ekki slæmt!!

xoxoxo
Katla

11:49 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

.. halló kalló.. já jóladjammið verður málið! en Dagga.. þetta er ekki gríma sem ég er að tala um en þegar þú segir það þá gæti hún alveg verið mamma þín ;) . ég man ekki hvað hún heitir, held hún sjái um þryfin þarna..

kv Þorbjörg :)

1:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ertu ekki örugglega úti ennþá? :) var svo viss um að ég hefði séð þig og Hauk á Primerunni í dag...

3:13 e.h.  
Blogger Katla Jör said...

Hahaha :) Já síðast þegar ég vissi :).... Bíddu ég ætla að kíkja út um gluggannn......

.....jú mikið rétt :) Enn í Bretalandinu hehe

Það gæti samt hugsast... ég segi þér þetta náttúrulega í fyllsta trúnaði.... að þú hafir séð einn af mínum fjölmörgu tvíförum sem eru á kreiki víðsvegar um heiminn! Ég er með nokkra svoleiðis á 24 klst vakt af því ég er náttla svo ógesslega mikilvæg og merkileg persóna eins og þú skilur!!!! Nokkra á Íslandi, einn í Köben og annan í Mongólíu (ekki spyrja afhverju).... En þetta er náttúrulega algjört leyndó!!

Hasta la vista beibí :)

Katla hin mikla

4:59 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home