Hvar er drottningin?
P.S. Ég bjóst fastlega við því að ég myndi sjá frú Drottningu á röltinu hér í nágrenninu fyrst ég er nú einu sinni í hennar heimalandi (ég hef nú líka verið hér í heilar 3 vikur). Það hefur enn ekki gerst.
Ég læt ykkur vita ef ég rekst á hana!!
Chiao, ze´Kat

11 Comments:
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Hæ elskuleg.
Langt síðan ég hef heyrt frá þér.
Gaman að allt skuli ganga vel og þú sért ánægð þarna þannig á það að vera.Það verður gaman að lesa meira um það hvernig þú blómstar þarna.
Allt gott að frétta hér.Loksins á að fara að frumsýna myndina "Kórinn", það verður 11.okt.í Háskólabío sem við leikarar fáum að líta hana augum, galakjólar gengið eftir rauðum dreiglum alveg eins og í Hollywood eða það vonum við :) . En svo er eitt gigg á morgun annað kvöld þá á ég að syngja með Ragga Bjarna eitt lag "ó blessuð vertu sumar sól" ég er að deyja úr stressi það verða engar 120 konur með mér. ég var nú að tala við Grétu systir og byðja hana að hoppa inn í ef ég gugnaði :(
Hafðu það gott ég er að fara að sofa í hausinn á mér það er dásamleg rigning úti núna og ætti að verða auðvelt að sofna út frá þeirri sinfoníu (í stað þess að láta óma í mínu heilabúi Ó blessuð o.s.frv......
Svo eru æfingabúðir hjá mér 14-16.okt. á Skógum ég hlakka til.
Bið að heilsa frumburðinum mínum , hef ekki heyrt frá honum í viku veit ekki hvernig honum líst á íbúðina.
Kv.Sólveig Hauksd.
Frábært að þú sért komin með svona síðu... þá getur maður fylgst með ævintýrum þínum þarna úti:)
Já, og ég bið að heilsa frú Drottningu ef þú sérð hana;)
Kveðja Unnur.
Loksins, loksins.... :). Hlakka til að fylgjast með þér hér.
Gaman að heyra í ykkur öllum ;) Ég skal skila kveðju til fuglsins sem og drollu þegar ég sé hana ;)
Ég hlakka til að heyra í ykkur aftur ;)
xoxoxo Katla
Og Solla ;)
Uuuuu... ég er voða spennt fyrir þína hönd hehe ;) Ég væri alveg til í að koma að hlusta á þig syngja!!!
Og svo verð ég að fá að sjá myndina þegar ég kem heim. Verst að ég verð ekki þarna með myndavél þegar þið gangið rauða dregilinn... fá smá "paparazzi-effect" hehehe ;)
Kveðja,
Katla
hæ sys og stóra frænka
ógó flott blogg :) Hlökkum til að lesa hvað þú ætlar að gera. Koma ekki uppfærslur daglega?
Hrönn og Eiríkur krús
Sæl frænka og til lukku með bloggið:) það verður gaman að geta fylgst aðeins með þér;)
Takk takk :) Gaman ad sja ykkur :)
Eg skal gera mitt besta i ad blogga sem oftast... :) Veit ekki med daglega samt, thad gaeti ordid soldid thunnt med timanum hahaha!
xoxox Katla
Já þetta er sniðugt, hef aldrei fattað að það sé hægt að senda inn skilaboð eða eitthvað. Þetta er flott blogg, eins og allir hinir hlakka ég að heyra meira. Nú er rólegt í augnarblikinu hér heima. Aysha er í bænum Hildur úti í herb. að læra. Hrönn, Goggi, Eiríkur og Bússi og frú fóru upp í Grímsnes.Jörri að horfa í formúluna. Þannig að nú kemst í tölvuna!! Hér er fínt veður, er að leita að orku til að fara á brettið! Ég hugsa að ég fái mér blund fyrst síðan á brettið. Hvernig er m. drolluna þarna í útlandinu er hún ekki búin að bjóða í te? Hvers konar gestrisni er þetta. Annar bið að heilsa ollum sem ég þekki. kv SM
Sæl :)
Já þetta er ferlega sniðugt fyrirbæri þetta blogg ;) Gaman að geta fengið "komment" utan frá hehe ;)
Já blessað brettið ;) Ég skal reyna að senda þér orkustrauma héðan. Kannski það hjálpi... "hmmmmm.... hmmmmmm....." ;) Finnurðu eitthvað???
Og varðandi hana Drollu þá hef ég hvorki tangur nér tetur séð af henni..! Mér finnst mér þetta bara alls ekki nógu gott! Ég þurfti eiginlega að eiga við hana orð! Ég hugsa að ég fari að þræða testofurnan í bænum og sjá hvort ég finni hana ekki þar ;)
Kossar og knús ;)
Katla
Skrifa ummæli
<< Home