ET phone home.....
Jæja... það er viljandi verið að kvelja mann!
Bretinn er strax farinn að setja upp jóladótið í verslanirnar. Sæta litla jólasveina, snjókarla og alles. Halló... það er OKTÓBER.... Aaaaahhhhh!!!
Vegna þessa hef ég verið með jólalög á heilanum undanfarna daga! "Feliz navidad...." osfrv.
Ég er bara ekki tilbúin að komast í jólaskap! Ég stóð inni í einhverri versluninni um daginn og íhugaði það af alvöru að byrja að skrifa jólakortin...!! HALLÓ...!!! Ég gæti allt eins keypt jólakort fyrir næstu 3 árin og byrjað að bulla eitthvað... senda þau svo út fyrirfram og vera stikkfrí næstu 3 ár hehe ;) Svo sá ég líka rosalega sæt súkkulaðijóladagatöl og velti fyrir mér hvort það væri nokkuð allt of snemmt að smakka 1. des. ;)
Kannski ég taki eins og eina smákökuuppskrift næstu helgi!!! ...Nei nei nei ég verð að hafa hemil á mér!!
Ég held það sé best að ég taki upp jólasveinaradarinn minn. Þennan sem ég bjó til úr ET símanum mínum og star wars-laser sverðinu. Allt til þess að forðast að setja upp jólaseríurnar fyrir 1. des!!!!
Atsjú,
Katla

10 Comments:
Hehe einmitt sammála þér með þetta jólastúss... ef ég fengi að ráða þá væru ekki spiluð jólalög fyrr en eftir ca 15. des eða svona bara eftir jólapróf... en snjórinn má koma strax og helst mikið af honum:) þá kemst ég á bretti:P og jólaljósin líka, þau eru svo kósý í myrkrinu:)
Já nákvæmlega.. það er ekkert eins slæmt og að komast í jólastuð of snemma... þá er bara fiðringurinn búinn þegar jólin loksins koma!!
En ég er sammála því að snjórinn sé alltaf velkominn hehe (allavega á veturna ;o) )
x Katla
Úff, nei nú verð ég að vera ósammála frænkum mínum....rigning og hiti í plús í allan vetur! :)
Hæ Katla.
Ef þú vissir!!!
ég sit hér í tölvunni meðan eru tvær konur að þrífa hjá mér :)
Yndislegt verð að knúsa þær á eftir.
Þetta er lúxus sem ég hef aldrei haft áður er að prófa (þ.e.a.s. Alfreð reddaði þeim hefur sjálfsagt funndist sín kona ekki nógu þrifin og ekki nennti hann að laga til) En ég segji þér það í trúnaði að ég gæti alveg vanist þessu :)
Var að koma úr æfingabúðum í gær, ofsalega gaman og við allar í skýjunum yfir því hvað myndin okkar er búin að fá góða dóma.
þú átt kannski eftir að heyra meira í mér úr því ég þarf ekki að eyða eins miklum tíma í þrif.
Maður er nú orðin kvikmyndastjarna og ætti ekki að þurfa að vera með hausin ofan í klósettinu.
(Þvílíkt snobb!!!!!kerlingarremba.)
Ég hélt ég ætti aldrei eftir að upplifa það að aðrir þrifu upp skítinn eftir mig og mína.ennnnnn.
Jæja Stelpan mín, jólin gætu nú bara komið á morgun mín vegna allt svo hreint.
Það má sleppa jólalögunum í útvarpinu fyrir mér ég á nóg af jóladiskum hér heima og get sett þá í spilarann í júlí ef ég vil.ha ha. Snjórinn má svo vera allsstaðar nema á götum borgarinnar og hananú. Gott væri að það væri snjór í miðjan nóv.þegar ég skrepp til Flórída í sólina og hitann.
kv.ein skrítin með húshjálp.
en...en...en...Katla, það eru ekki til nein páskaegg í Bretlandi !
Ég verð að viðurkenna að ég er farin að hlakka rosalega til jólanna, enda fæ ég þá að vera með manninum mínum :) Ég er líka á því að maður eigi að skrifa jólakortin snemma, annars er það bara stress... ég er ánægðust þegar ég set þau í póstkassann 1.des, þá líður mér eins og ég sé búin að afreka stórkostlegan jólagjörning. En ég er ekkert svo hrifin af jólalögum fyrr en í desember, annars er maður kominn með algjört ógeð. Held þú ættir bara að slökkva á þessum túrbóradar og missa þig í jólaföndri!
æji....hmm...þetta var sko ég -Dagrún híhí
Hehe.. fólk hefur greinilega misjafnar skoðanir á þessu :) Hehe
Sum okkar eru meiri snjókarlar en aðrir ;) Enda er það líka bara ágætt. Mér finnst snjórinn góður að því leiti að það verður allt mun bjartara í svartasta skammdeginu þegar jörðin er þakin snjó heldur en þegar það rignir og allt er grátt og slepjulegt!!
Og í sambandi við jólastússið þá er ég sammála því að gott sé að byrja snemma... minnka stressið aðeins þegar nær dregur. Svo fremi sem það sé ekki of snemma :)
Kannski ég byrji á jólakortunum eftir svona mánuð hehe :) Get hugsað um þau þangað til :)
Og Sólveig... uuu það er ekki slæmt að hafa hersveit af húshjálp hehe :) Og að sjálfsögðu ættir þú sem kvikmyndastjarna að krefjast þess að hafa þetta svona öllum stundum!! Helst bara að flytja til Hollívúdd og gera þetta almennilega!!!
Og páskaeggin.... það er náttla alvarlegt mál! Ekki hægt að sleppa páskaeggjunum!
Kannski ég hringi í Blair og biðji hann um að redda þeim málum! Þó það væri ekki nema til að redda einu eggi! Ég hlýt að lifa af með eitt egg í þetta skipti!
Kannski ég geti þá líka reddað sviðasultunni, Sellafield og heimsfriðinum í leiðinni!!!
Hasta la vista
Skrifa ummæli
<< Home