Eplakinnar
Moa klæddist úlpunni í dag (þurfti þess þó varla). Því hún ætlaði sko aldeilis að vera vel undirbúin fyrir hverskyns næðing. Er það í fyrsta skipti síðan ég kom hingað sem ég hef þurft að dúða mig upp! Mér finnst það bara aldeilis merkilegt að ég hafi ekki þurft að setja upp skynsemisklæðin fyrr en undir lok október... ég er svo aldeilis hlessa!!
Nú er líka vetrarfiðringurinn farinn að segja til sín hehe :) (farin að dreyma um hvítar snjóflygsur og eplakinnar).
Katlan

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home