Eftirmiðdagslúr handa minna
Vísíbú!!!!
Mín skellti sér upp í sveitina í dag til að njóta ferska loftsins og skjóta leirdúfur :) Og svei mér þá mér gekk bara alls ekkert svo agalega! Þegar best var hitti ég meira að segja 8 af þeim 10 leirdúfum sem skotið var út í loftið. Ekki slæmt! (Reyndar var þetta langauðveldasti skotstaðurinn en við förum að sjálfsögðu ekki meira út í það hehe).
Dagurinn var líka sérlega ánægjulegur að því leiti að veðrið var mjög gott á milli þess að það var það ekki! Þess á milli blés nefnilega ansi hressilega og Katlan var svo skynsöm að skilja jakkann sinn eftir í bílnum. Af því leiddi að eftir nokkrar klukkustundir af bið og byssusveiflum fann hún ekki lengur fyrir höndunum sínum! Hún hélt hún hefði jafnvel skilið þær eftir einhvers staðar en sá sér til mikillar ánægju að svo var ekki!!! Þær höfðu einungis tekið sér síestu sökum kulda! En það skipti að sjálfsögðu ekki máli því þetta var ubersúpergaman :)
Muahahahahaha........!
Þangað til næst :)
Katlíkatl

2 Comments:
Sælar skvís, gaman að lesa og fylgjast með þér :D
frábært hjá þér þetta með leirdúfurnar ... þér er sko ekki tjaslað saman, þú getur allt sem þú tekur þér fyrir höndum ;)
Ilmandi klórkveðja!
Ragga
Hahaha :) Ég vona það :) Hið sama er nú hægt að segja um þig sem tekst að gera allt í einu og það vel í þokkabót ;)
Bros í pakka til þín frá mér :)
Katlan
Skrifa ummæli
<< Home